year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 51 | Formaður samninganefndar Evrópusambandsins er bjartsýnn eftir fyrsta dag fundarhalda um framtíð kjarnorkusamningsins við Írana. Fulltrúar Evrópusambandsríkja, Bretlands, Rússlands og Kína funduðu með Írönum í Vínarborg í gær með það fyrir augum að koma kjarnorkusamningnum frá 2015 aftur í gagnið. | Enrique Mora, aðalsamningamaður Evrópusambandsins um framtíð samningsins, var vongóður eftir fyrsta fundardaginn. Hann sagði viðræðurnar hafa einkennst af þeirri tilfinningu, að það sé bráðnauðsynlegt að endurlífga kjarnorkusamninginn. Samningurinn kveður á um að Íranar hætti að auðga úran, veiti eftirlitsmönnum Alþjó... | null |
2021 | 51 | Ríkissjóður verður rekinn með 169 milljarða króna halla á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra sem kynnt var í morgun. Útgjöld til Landspítalans aukast um 2,6 milljarða króna. | Komið öll blessuð og sæl. Ég er hingað mættur til að fara yfir meginatriði úr fjárlagafrumvarpinu.
Samkvæmt frumvarpinu sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti í morgun verður ríkissjóður rekinn með 169 milljarða króna halla, sem er þó 120 milljörðum minni halli en í fyrra. Mikill hallarekstur er til kominn veg... | null |
2021 | 51 | Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir engar áherslubreytingar í fjárlögum frá kosningum og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina skorta kjark til framfara. Fréttastofa hitti þá á Alþingi fyrir fréttir og fékk fyrstu viðbrögð við fjárlagafrumvarpinu. | Við stöndum á ágætis grunni, vegna þess að skuldastaða ríkissjóðs er góð. Þess vegna er engin afsökun fyrir því að við ráðumst ekki í meiri stórhuga framfarir. Það er engin sókn í loftslagsmálum, engin í menntamálum og það virðist eins og ójöfnuður komi þessari ríkisstjórn ekki við. Ástandið er nægilega gott til þess a... | null |
2021 | 51 | Ekkert skipulagt eftirlit hefur verið með rafmagnshlaupahjólum sem komast yfir leyfilegan hámarkshraða á göngu- og hjólastígum. Guðbrandur Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild, segir brýnt að lögregla fái einföld úrræði til þess að bregðast við rafhjólum sem skapi hættu á göngustígum. | Og ég tek undir það að við höfum verulegar áhyggjur af þessu í dag, svo ég tali nú ekki um skammdegið núna. Þar sem svart malbikið, og jafnvel blautt, virðist gleypa umhverfið. Og þegar við fáum þessi slys, þessi alvarlegu slys núna undanfarið þá er maður bara á nálum að dagurinn sleppi slysalaus eða slysalítill.
Lögum... | null |
2021 | 52 | Meirihluti svissneskra kjósenda lýsti í gær stuðningi við lagasetningu og aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að hefta útbreiðslu COVID-19 í landinu. Efnt var til þjóðaratkvæðagreiðslu um löggjöf sem meðal annars heimilar stjórnvöldum að meina fólki aðgang að ýmsum viðburðum þar sem margir koma saman nema það sé fullbóluse... | Útgönguspár bentu til þess að vel yfir sextíu prósent kjósenda hefðu samþykkt löggjöfina og niðurstöður í 16 af 26 kantónum landsins sýndu 61,9 prósenta stuðning við hana. Kjörsókn var um 64 prósent. Auk þess að heimila margs konar sóttvarnaaðgerðir kveða lögin á um heimildir til hárra fjárveitinga til fyrirtækja og st... | null |
2021 | 52 | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir sterku liði Rússlands í undankeppni HM 2023 í dag. Leikmenn íslenska liðsins hafa fulla trú á verkefninu. | Þetta er annnar leikur beggja liða í undankeppninni en Rússar lögðu Ítali í fyrsta leik og Ísland vann Holland. Rússar eru þó töluvert sterkari en Hollendingar en íslenska liðið er vel undirbúið.
segir Hjalti Þór Vilhjálmsson aðstoðarþjálfari íslenska liðsins. Engir áhorfendur voru leyfðir á leik Íslands og Hollands. Í... | Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í körfubolta telja sig eiga góða möguleika gegn Rússlandi í undankeppni HM í dag. Bæði lið unnu fyrsta leik sinn í riðlinum. |
2021 | 52 | Ráðherrar ríkisstjórnarinnar skiptust á lyklum í morgun og eru nú allir komnir með lykla að sínu ráðuneyti. | Hringekjan hófst í heilbrigðisráðuneytinu klukkan níu þar sem Willum Þór Þórsson, nýr ráðherra, tók við lyklunum að heilbrigðisráðuneytinu af Svandísi Svavarsdóttur. Willum segir þetta leggjast vel í sig.
Þaðan lá leiðin niður á næstu hæð í Skógarhlíðinni þar sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson fyrrverandi umhverfisráðherr... | Margir ráðherrar skiptust á lyklum í morgun. Sumir bæði afhentu og tóku við, en einnig bættust tveir nýir ráðherrar við. |
2021 | 52 | Karlmaður á fimmtugsaldri, sem lögreglan skaut og særði á Egilsstöðum í ágúst, hefur verið ákærður fyrir tvær tilraunir til manndráps, brot í nánu sambandi og vopnalagabrot. Í ákærunni kemur fram að tveir drengir flúðu undan byssumanninum og földu sig í skógi eftir að hann beindi hlaðinni haglabyssu að þeim. Byssumaður... | Í ákærunni er tekið fram að maðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis þetta kvöld. Hann er meðal annars ákærður fyrir brot í nánu sambandi en hann er sagður hafa hafa hótað sambýliskonu sinni með því að beina skammbyssu að henni.
Hann er síðan ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignaspjöll og vopnalagabrot. ... | null |
2021 | 52 | Fjölmargar stofnanir og verkefni færast milli ráðuneyta við uppstokkun ríkisstjórnarinnar. Heiti ráðuneyta verða óbreytt þangað til þingið hefur lagt blessun sína yfir þau samkvæmt nýrri verkaskiptingu. | Verkaskiptingu milli ráðuneyta má sjá í forsetaúrskurði sem birtist á vef stjórnartíðinda í morgun.
Verkefni forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis eru óbreytt frá því sem áður var. Annars staðar eru töluverðar hræringar. Lilja Alfreðsdóttir, sem verður ferðamála-, viðskipta- og menningarmálará... | Fjölmargar stofnanir og verkefni færast á milli ráðuneyta við uppstokkun ríkisstjórnarinnar. Farið verður yfir hlutverk nýrra ráðuneyta í hádegisfréttum. |
2021 | 52 | Enn er fylgst grannt með hreyfingum íshellunnar í Grímsvötnum, sem nú hefur sigið um rúma fjóra metra. Rennsli er farið að aukast lítillega í Gígjukvísl en Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir það sé aðeins tímaspursmál hvenær fari að hlaupa undan jöklinum. | En það má alveg búast við að sigið í Grímsvötnum sjálfum geti verið allt að hundrað metrar. Svo það er auðvitað búið að síga 4 og hálfan metra af þessum kannski 100 metrum. Það er auðvitað lítill hluti enn þá. En eins og er mældist einn skjálfti þarna í morgun rétt norður af Grímsvötnum en það er samt ekki byrjuð að mæ... | null |
2021 | 53 | Mismunandi sýn ríkisstjórnarflokkana á lykilmálaflokka skýrir langar stjórnarmyndunarviðræður að sögn Eiríks Bergmanns Einarssonar, stjórnmálafræðings. Þá segir hann að á einu kjörtímabili sé hægt að láta einhver málefni sitja á hakanum, en það geti nú reynst flóknara. | Þetta er sko ríkisstjórn sem að náttúrulega er komin reynslá á hana, hún er búin að starfa eitt kjörtímabil en þetta er ríkisstjórn mjiög ólíkra flokka. Og þetta er sko ríkisstjórn sem er auðvitað þess eðlis að þar sem að sjónarmið eru mjög gagnstæð þá hafa þau málefni kannski setið dálítið á hakanum. Það gengur kannsk... | null |
2021 | 53 | Sérfræðingur í smitsjúkdómum segir fulla ástæðu til að stíga á hemilinn vegna omicron-afbrigðis kórónuveirunnar. Afbrigðið er algjörlega nýtt, breiði mjög hratt úr sér og mögulega sé ekki ráðrúm til að afla gagna og velta vöngum. | Það er betra að bregðast við og gæta kannski meðalhófs í því heldur en að bíða mjög lengi og afla ganga, einfaldlega vegna þess að þessi ógn sem steðjar að okkur, allri heimsbyggðinni að hún er þess eðlis að hún tvöfaldar útbreiðslu sína kannski á fjögura, fimm daga fresti og á meðan við erum að velta vöngum fer farald... | null |
2021 | 53 | Suðurafríski læknirinn sem uppgötvaði Ómikrón-afbrigði COVID-19 segir sjúkdómseinkenni þess mun vægari en í fyrri afbrigðum. Því séu harðar aðgerðir ekki nauðsynlegar nú. Ísrael hefur ákveðið að loka landinu fyrir útlendingum. | Ísraelsmenn hafa ákveðið að banna útlendingum að koma til landsins vegna útbreiðslu ómikrón-afbrigðis COVID nítján. Læknirinn sem uppgötvaði afbrigðið segir sjúkdómseinkennin mun vægari en í fyrri afbrigðum og því séu harðar aðgerðir ónauðsynlegar að sinni.
Helstu aðgerðir þjóðanna hingað til gegn hinu nýja afbrigði ha... | Suðurafríski læknirinn sem uppgötvaði Ómikrón-afbrigði COVID-19 segir sjúkdómseinkenni þess mun vægari en í fyrri afbrigðum. Því séu harðar aðgerðir ekki nauðsynlegar nú. Ísrael hefur ákveðið að loka landinu fyrir útlendingum. |
2021 | 53 | Formaður Hafnarsambands Íslands segir að hafnir landsins grípi í tómt þegar leitað er eftir reglum um sláturskip. Skipin taki eldislax beint úr kvíum án þess að greiða hafnargjöld. Skorað er á stjórnvöld taka notkun sláturskipa til skoðunar. | Hafnasamband Íslands hefur áhyggjur af komum sláturskipa sem taka eldisfisk beint úr kvíum og sigli burt án þess að greiða hafnargjöld. Á sama tíma geri eldisfyrirtækin kröfu um góðar hafnaraðstæður og þjónustu.
Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði og formaður Hafnasambands Íslands, segir að töluverður ágreining... | null |
2021 | 53 | Argentískur fjölskyldufaðir er mikill aðdáandi knattspyrnukappans Diego Maradona sem lést fyrir réttu ári. Yngsta barn aðdáandans og eiginkonu hans fæddist fyrir helgi og aldrei kom annað til en að skíra börn sín í höfuðið á Maradona. | Argentísku hjónin Walter og Victoria Rotundo eignuðust dreng sem hlotið hefur nafnið Diego til heiðurs knattspyrnukappanum Diego Armando Maradona sem lést fyrir réttu ári sextugur að aldri. Talið er að banamein hans hafi verið hjartaáfall en hann fór í aðgerð vegna blóðtappa í heila skömmu áður. Málaferli standa yfir g... | null |
2021 | 53 | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Rússlandi í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2023 á morgun. Íslensku leikmennirnir segja aðstæður í Rússlandi frábærar og eru fullir sjálfstrausts fyrir leikinn. | Eftir fyrstu umferð riðilsins eru Rússar á toppnum eftir sigur á Ítölum á föstudag. Ísland vann á sama tíma Holland 79-77. Leikur Íslands og Rússlands átti að fara fram Íslandi en þar sem enginn völlur á Íslandi er samþykktur af Alþjóðakörfuknattleikssambandinu þurfti að færa hann til Rússlands. Baldur Þór Ragnarsson a... | null |
2021 | 54 | Íshellan yfir Grímsvötnum sígur enn og búist er við hlaupi undan Skeiðarárjökli. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir aðdragandann að hlaupi virðast ætla að verða lengri en oft áður. | Íshellan er búin að lækka um tæpa 1,6 metra og það hefur ekki mælst nein breyting á rafleiðini í Gígjukvísl. Það er örlítið farið að hækka í ánni en ekki mikið samt. Þannig að það er í rauninni, já þetta er í rauninni staðan, það er ekki hlaup hafið. Við segjum að hlaup sé hafið þegar það kemur undan jöklinum en vatnið... | Vatnsmagn í Gígjukvísl er farið að aukast en þar hefur engin rafleiðni mælst enn. Íshellan yfir Grímsvötnum heldur áfram að síga en aðdragandi hlaups verður líklega lengri en oft áður. |
2021 | 54 | Baugur Bjólfs verður stór hirnglaga útsýnispallur í 640 metra hæð í fjallinu Bjólfi fyrir ofan Seyðisfjörð. Útsýni þar þurkir stórbrotið og á mannvikið að verða mikið adráttarafl. | Stór hringlaga útsýnispallur verður reistur á fjallinu Bjólfi fyrir ofan Seyðisfjörð. Sveitarfélagið Múlaþing ætlar að sækja í framkvæmdasjóð ferðmannastaða til að byggja pallinn sem kallast Baugur Bjólfs. Ástríður Birna Árnadóttir arkitekt er einn af höfundum vinningstillögu í hönnunarsamkeppni.
Pallurinn er sam sagt ... | Baugur Bjólfs verður stór hirnglaga útsýnispallur í 640 metra hæð í fjallinu Bjólfi fyrir ofan Seyðisfjörð. Útsýni þar þurkir stórbrotið og á mannvikið að verða mikið adráttarafl. |
2021 | 54 | Gert er ráð fyrir að slátrun á laxi úr sjókví í Reyðarfirði þar sem sjúkdómurinn blóðþorri kom upp verði lokið annað kvöld. Sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun segir veiruna sem veldur sjúkdómnum mjög smitandi innan sjókvíarinnar og að vakta verði svæði vel í framhaldinu. | Gísli Jónsson dýralæknir fisksjúkdóma hjá Matvælastofun segir stökkbreytingu vel þekktrar veiru valda því að blóðþorrinn hafi komið upp í sjókví hjá fyrirtækinu Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Þetta er í fyrsta skiptið sem sjúkdómurinn kemur upp hér á landi en hann ræðst á þekjuvef blóðæða.
Brýtur blóðæðarnar niður þanni... | Alvarlegur smitsjúkdómur, blóðþorri, hefur greinst í laxi í sjókví í Reyðafirði og verður öllum fiskunum þar slátrað. Þetta er í fyrsta sinn sem sjúkdómurinn greinist á Íslandi og segir sérgreinalæknir hjá MAST brýnt að vakta svæðið vel. |
2021 | 54 | null | Flestir ráðherrar ríkisstjórnarinnar aðrir en formenn flokkanna hafa vistaskipti í nýrri ríkisstjórn. Ráðherrum í ríkisstjórninni fjölgar væntanlega um einn og kemur hann úr röðum Framsóknarmanna. Ný ríkisstjórn og nýr stjórnarsáttmáli verða kynnt á morgun. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, nú sér loksins fyrir endann á.. h... | Flestir ráðherrar ríkisstjórnarinnar aðrir en formenn stjórnarflokkanna hafa vistaskipti í nýrri 12 manna ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem verður kynnt á morgun. Stjórnarsáttmálinn verður kynntur flokkstofnunum flokkanna í dag. |
2021 | 54 | Formaður tennissambands kvenna hefur enn áhyggjur af afdrifum tennisstjörnunnar Peng Shuai, þrátt fyrir myndskeið sem eiga að gefa til kynna að hún sé heil á húfi. Svör við tilraunum til að ná sambandi við hana hafi greinilega ekki komið frá henni. | Ekkert heyrðist frá Peng Shuai í meira en tvær vikur eftir að hún sakaði fyrrverandi varaforseta landsins, Zhang Gaoli, um að hafa neytt sig í kynlíf. Ásökunina birti hún á kínverskum samfélagsmiðli annan nóvember en færslunni var síðan eytt. Tuttugasta og fyrsta nóvember sagði Alþjóða ólympíunefndin í yfirlýsingu að T... | null |
2021 | 54 | Ríflega sextíu manns sem komu með flugi frá Suður-Afríku til Hollands í gær greindust með COVID-19. Verið er að rannsaka hvort einhverjir séu með nýja Ómíkrón-afbrigðið. Bandaríkin hafa bæst í hóp þeirra fjölmörgu landa sem banna ferðir frá sunnanverðri Afríku. | Nýja afbrigðið, sem greindist fyrst í Suður-Afríku er mögulega meira smitandi en fyrri afbrigði og gæti komist framhjá einhverjum ónæmisvörnum. Frekari rannsókna er þó þörf. Evrópusambandið ákvað í gær að banna flug frá löndum sunnanverðrar Afríku, og í gærkvöld bættust lönd á borð við Bandaríkin, Kanada og Ástralíu í ... | null |
2021 | 54 | Martin Hermannsson átti stórleik þegar íslenska körfuboltalandsliðið vann Holland í fyrsta leik liðanna í undankeppni HM 2023 í gærkvöld. Martin, sem hefur ekki leikið með liðinu í tvö ár, segir hrikalega gaman að vera kominn aftur. | Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og liðin skiptust á að hafa forystuna. Ísland lokaði fyrri hálfleiknum á þriggja stiga körfu frá Elvari Má Friðrikssyni og staðan 44-41 fyrir Ísland þegar liðin gengu til búningsklefa eftir jafnan fyrri hálfleik. Þriðji leikhluti var sveiflukenndur, íslenska liðið náði me... | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann fyrsta leik sinn í undankeppni HM 2023 í gærkvöld. Martin Hermannsson lék sinn fyrsta landsleik í tvö ár og gerði 27 stig. |
2021 | 55 | Óvíst er hvort bóluefni sem notuð hafa verið gegn kórónuveirunni til þessa dugi til að halda niðri nýju afbrigði sem greint var frá í Suður-Afríku í gær. Í ráði er að stöðva flugferðir frá löndum í sunnanverðri Afríku til Evrópuríkja. Hlutabréfavísitölur í Asíu og Evrópu hafa fallið í dag vegna tíðindanna. | Nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem uppgötvaðist í Suður-Afríku veldur áhyggjum víða um heim. Flugferðir frá löndum í sunnanverðri Afríku hafa þegar verið stöðvaðar í nokkrum löndum til að koma í veg fyrir útbreiðslu þess. Óvíst er að hvort þau bóluefni sem notuð hafa verið gegn öðrum afbrigðum dugi.
Heilbrigðisyfirvöld ... | Erlendir vísindamenn eru í vafa um hvort bóluefnin sem hafa verið notuð gegn kórónuveirunni til þessa dugi til að halda niðri nýju afbrigði sem nýlega greindist fyrst í Suður-Afríku. Flugferðir hafa verið stöðvaðar víða frá sunnanverðri Afríku til Evrópuríkja. Hlutabréfavísitölur hafa fallið í dag vegna tíðindanna. |
2021 | 55 | Talsverð lækkun varð í Kauphöllinni í morgun sem rekja má til nýjustu tíðinda af veirunni. Félög í ferðaþjónustu tóku mesta skellinn. Greinandi kallar hlutabréfamarkaðinn dramadrottningu. | Hlutabréfaverð lækkaði víðast hvar í heiminum í morgun. Úrvalsvísitalan hér á landi lækkaði um ríflega tvö prósent. Snorri Jakobsson, forstjóri Jakobsson capital segir fregnir af nýju afbrigði enn vera nokkuð óljósar en dýfan á hlutabréfamarkaði sé nokkuð mikil.
Það er búið að vera töluverð lækkun á gengi hlutabréfa en... | null |
2021 | 55 | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur leik í undankeppni HM 2023 í dag þegar liðið mætir Hollandi. Hollenska liðið er tveimur sætum fyrir ofan Ísland á heimslistanum en leikmenn segjast vel stemmdir fyrir átök kvöldsins. | Craig Pedersen, landsliðsþjálfari, sagði fyrri í vikunni að það væri markmið liðsins að klára í einu af efstu þremur sætum riðilsins til að komast áfram í næstu umferð undankeppninnar, og til þess að halda áfram að fá tækifæri til að spila við bestu þjóðir heims. Ægir Þór Steinarsson, fyrirliðið liðsins, segir liðið ve... | null |
2021 | 55 | null | Landspítalinn og Embætti landlæknis funda í dag um fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem er til rannsóknar hjá lögreglu í tengslum við sex andlát sjúklinga á stofnuninni og meðferð fimm annarra. Læknirinn var sviptur starfsleyfi, en hefur síðan fengið takmarkað starfsleyfi sem þýðir að hann vinnur undir... | Landspítalinn og Embætti landlæknis funda í dag um fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem er til rannsóknar hjá lögreglu í tengslum við sex andlát sjúklinga á stofnuninni og meðferð fimm annarra. |
2021 | 55 | Ekki stendur til að herða aðgerðir á landamærum hér vegna nýja afbrigðisins að svo stöddu. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að það séu engar rannsóknir sem bendi til þess að þetta sé hættulegra en delta-afbrigðið. | Núgildandi sóttvarnareglur á landamærum gilda til fimmtánda janúar. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að fylgst sé með nýju afbrigði kórónuveirunnar, sem talað hefur verið um að sé skæðara en önnur afbrigði, en ekkert bendi til þess að ástæða sé til þess að herða aðgerðir að svo stöddu.
Kári Stefánsson, forstjóri... | Sóttvarnalæknir segir að ekki standi til að leggja til hertar aðgerðir á landamærum hérlendis vegna nýja afbrigðisins. |
2021 | 55 | Glæparannsókn er hafin á tildrögum námuslyss í Rússlandi í gærmorgun. Minnst 52 létu lífið og slysið er eitt það mannskæðasta í landinu í áratugi. | Reyks varð vart ofan við námuna snemma í gærmorgun en þá voru 285 námuverkamenn neðanjarðar. 239 þeirra tókst sjálfum, eða með aðstoð félaga sinna og björgunarsveita, að komast upp en 46 voru fastir í kolanámunni. Það tókst að ná til nokkurra þeirra en fljótlega var skipulagður björgunarleiðangur til að freista þess að... | Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Rússlandi vegna eins mannskæðasta námuslyss í landinu í áratugi. Minnst 52 létu lífið. |
2021 | 55 | Þingflokkar stjórnarflokkanna þriggja verða líklega ekki boðaðir til fundar vegna ríkisstjórnarmyndunar fyrr en á morgun og þingmenn bíða forvitnir og spenntir eftir niðurstöðunni. Hvorki var ríkisstjórnarfundur né þingfundur í dag. | Steinunn Þóra Árnadóttir sitjandi formaður þingflokks VG segir í samtali við fréttastofu að enn sem komið er hafi ekki verið tilefni til að kalla þingflokkinn saman en boðað verði til fundar um leið og línur fari að skýrast.
Í sama streng tekur Birgir Ármannsson sitjandi þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Það eru... | Sitjandi þingflokksformenn stjórnarflokkanna eru í startholunum við að boða til þingflokksfunda til að fara yfir stjórnarsáttmála, en talið er líklegt að það verði ekki fyrr en á morgun. Þingmenn eru forvitnir og spenntir um hver niðurstaðan verður, nú tveimur mánuðum eftir kosningar. |
2021 | 56 | Dóttir konu, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir ótímabæra lífslokameðferð, segir óskiljanlegt að læknirinn sem bar ábyrgð á meðferð hennar hafi verið ráðinn til starfa á Landspítala. Læknirinn starfaði undir eftirliti á Landspítala fyrst eftir að málið kom upp, en fékk endurnýjað takmarkað starfsleyfi fyrir... | Móðir Evu Hauksdóttur var lögð inn í hvíldarinnlögn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019, en var sett í lífslokameðferð. Hún lést ellefu vikum síðar. Fjölskylda hennar kvartaði undan meðferðinni til Landlæknis.
Og það er bara áfellisdómur .. farið úrskeiðis.
Læknirinn sem bar ábyrgð á meðferð hennar hefur undanfar... | Dóttir konu sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja furðar sig á að læknir, sem er með réttarstöðu sakbornings vegna málsins, hafi verið ráðinn til starfa á Landspítala. Starfsleyfi hans var endurnýjað fyrir tveimur vikum. Annar læknir, sem einnig hefur réttarstöðu sakbornings í málinu, er enn með gilt læknaleyfi samk... |
2021 | 56 | Til að flýta framkvæmdum við Vatnsnesveg í Húnaþingi vestra ákvað sveitarstjórnin að stofna til söfnunar á samskotasíðunni Karolinafund. Markmiðið er að safna hundrað milljónum upp í kostnað við framkvæmdir. | Í bókun af fundi sveitarstjórnarinnar í gær segir að hún leggi mikla áherslu á að Vatnsnesvegur fari framar á samgönguáætlun. Núverandi áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í fyrsta lagi árið 2030, á þriðja tímabili hennar. Sveitarstjórnin segir það óásættanlegt fyrir íbúa Húnaþings vestra.
Vegurinn er um 70 k... | Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur efnt til söfnunar á samskotasíðunni Karolinafund í því skyni að flýta endurbótum á Vatnsnesvegi. |
2021 | 56 | Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og hugbúnaðarfyrirtækið YAY ehf. fengu í dag hæstu sekt sem Persónuvernd hefur gefið út vegna alvarlegra brota gegn helstu ákvæðum persónuverndarlaga í tengslum við ferðagjöf stjórnvalda. | Allir landsmenn 18 ára og eldri fengu í fyrra ferðagjöf hjá stjórnvöldum og var markmiðið að styrkja ferðaþjónustuna í landinu á tímum Covid. Til að sækja ferðagjöfina þurfti að sækja stafræn gjafabréf í gegnum smáforrit sem hannað var af YAY ehf. Persónuvernd barst fjöldi ábendinga um að við notkun ferðagjafarinnar væ... | Persónuvernd hefur gert atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og YAY ehf. að greiða hæstu sekt sem stofnunin hefur gefið út til þessa. Allar helstu grundvallarreglur voru brotnar þegar stjórnvöld útdeildu ferðagjöfinni til landsmanna. |
2021 | 56 | Sveitarfélög á landsbyggðinni ætla að taka sig saman og stofna sameiginlegt leigufélag sem byggir fjölda hagkvæmra leiguíbúða fyrir tekjulægra fólk. | Fimmtán sveitarfélög hafa tekið vel í að stofna saman umsvifamikið húsnæðisfélag ætlað er að byggja og leigja út íbúðir víða á landsbyggðinni. Með stærðarhagkvæmni ætti að vera hægt að hrinda mun fleiri verkefnum af stað.
Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga lögðu höfuðið í bleyti til þess ... | Sveitarfélög á landsbyggðinni ætla að taka sig saman - stofna sameiginlegt leigufélag og byggja fjölda hagkvæmra leiguíbúða fyrir tekjulægra fólk. |
2021 | 56 | Félagið Heilsuvernd ehf., sem tók við rekstri hjúkrunarheimilanna á Akureyri fyrr á árinu, vill kaupa fasteignirnar þar sem heimilin eru rekin. Byggingarnar eru í eigu Akureyrarbæjar og ríkisins. Tilboð fyrirtækisins hljóðar upp á þrjá milljarða og rennur út á morgun. | Í síðustu viku barst tilboð Teits Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Heilsuverndar, fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags í eigu Heilsuverndar í húseignir við Vestursíðu 9 og Austurbyggð 17. Tilboðið hljóðaði upp á þrjá milljarða. Var það tekið til umræðu á fundi bæjarráðs þar ákveðið var að setja eignirnar í söluferli og óska... | null |
2021 | 56 | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Hollandi í fyrsta leik í undankeppni HM á morgun. Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður, segir að barátta liðsins geti tryggt því sigurinn. | Íslenska liðið hefur verið í Amsterdam síðastliðna daga og undirbúið sig fyrir leikinn gegn heimamönnum í Hollandi. Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður, segir undirbúning hafa gengið vel.
Liðin tvö séu álíka sterk og telur hann íslenska liðið eiga góða möguleika.
Sagði Tryggvi Snær Hlinason. Eftir leikinn á morgun he... | null |
2021 | 57 | Verkefnastjóri fyrir íslenska hestinn hjá Íslandsstofu segir, að það sem fram kemur í myndbandi um blóðmerar, sé hræðilegt fyrir ímynd Íslands. Félög hrossabænda og tamningamanna skora á Matvælastofnun, að gera úttekt á aðbúnaði þar sem blóðtaka úr fylfullum merum er stunduð. | Jelena Ohm verkefnastjóri Horses of Iceland hjá Íslandsstofu segir myndbandið skaða ímynd landsins. Verklagið sem sjáist á myndbandinu sé alls ekki í takt við þær framfarir sem almennt hafi orðið í aðferðum við tamningu og umhirðu hesta síðustu áratugi.
Þetta er auðvitað hryllingur fyrst og fremst að sjá fyrir okkur að... | null |
2021 | 57 | Kosið verður að minnsta kosti um þrjár tillögur á Alþingi á morgun vegna talningar í Norðvesturkjördæmi, hugsanlega fleiri. Stefnt er að því að ljúka málinu með atkvæðagreiðslu á morgun. Þingflokksformenn funda með starfandi forseta Alþingis í dag. | Kjörbréfanefnd sem kosin var á þingsetningarfundi í gær hefur setið á fundi frá því í morgun vegna talningarmálsins í Norðvesturkjördæmi en búist er við að tillögur nefndarmanna liggi endanlega fyrir í fyrramálið. Þingfundur hefst klukkan eitt á morgun. Þegar er vitað um tillögur meirihluta nefndarinnar um að staðfesta... | null |
2021 | 57 | Holdafar rjúpna er mun betra en í fyrra og með því besta sem mælst hefur frá því farið var að fylgjast með viðgangi rjúpna 2006. Fuglafræðingur segir þetta geta boðað betri tíma fyrir stofninn. | Rjúpnaveiðitímabilið stendur nú sem hæst en Náttúrufræðistofnun gaf það út fyrir tímabilið að aðeins mætti veiða 20 þúsund fugla. Stofnunin skoðaði ástand rjúpna nú í haust og voru rúmlega 200 fuglar mældir. Niðurstöðurnar sýndu tölfræðilega marktækan mun á holdafari milli ára sem mældist nú með besta móti. Ólafur Karl... | Ný rannsókn sýnir að holdafar rjúpna er með því besta sem mælst hefur. Þetta getur hjálpað stofninum að stækka og rétta úr kútnum segir fuglafræðingur. |
2021 | 57 | Eiður Smári Guðjohnsen og KSÍ hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins í fótbolta. Ómar Smárason samskiptastjóri sambandsins segir langan aðdraganda að starfslokunum. | Í tilkynningu frá KSÍ sem barst seint í gærkvöld segir að samkomulag hafi verið gert milli KSÍ og Eiðs um starfslok hans. Samkvæmt heimildum RÚV var kornið sem fyllti mælinn atvik eftir leik Íslands gegn Norður-Makedóníu þar sem áfengi var haft um hönd. Síðastliðið sumar fór Eiður í tímabundið leyfi frá störfum hjá KSÍ... | Eiður Smári Guðjohnsen er hættur sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta. Samskiptastjóri sambandsins segir langan aðdraganda að starfslokunum en atvik eftir leik gegn Norður Makedóníu er sagt hafa verið kornið sem fyllti mælinn. |
2021 | 57 | Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar andlát sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hún telur að ætla megi að hafi verið ótímabær og borið að með saknæmum hætti. Meðferð fimm annarra sjúklinga er einnig til rannsóknar en lögregla hefur rökstuddan grun um að þeir hafi verið í lífslokameðferð að tilefni... | Þetta kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þar sem fallist er á kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum um að dómkvaddir verði tveir matsmenn til að svara fjórum spurningum í tengslum við andlát eins sjúklings. Landsréttur staðfesti úrskurðinn í síðustu viku.
Aðstandendur sjúklingsins kærðu þrjá starfsmenn HSS til ... | Sex andlát á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Lögregla telur að ætla megi að andlátin hafi verið ótímabær og borið að með saknæmum hætti. Lífslokameðferð fimm annarra sjúklinga er einnig til rannsóknar. |
2021 | 57 | Eftirlit var aukið með hjónunum Einari og Beverly Gíslasyni sem voru dagforeldrar og leikskólakennarar í Garðabæ, eftir að ábendingu frá manni sem hafði orðið fyrir harðræði af þeirra hálfu á vistheimili á Hjalteyri. | Aukið eftirlit var haft með hjónum sem voru dagforeldar og leikskólakennarar í Garðabæ eftir að bæjarfélaginu barst ábendingum um að hjónin hefður beitt börn miklu harðræði þegar þau ráku vistheimili á Hjalteyri.
Fólk sem dvaldi á vistheimilinu á Hjalteyri steig fram í fjölmiðlum í upphafi vikunnar og lýsti kynferðisof... | Eftirlit var aukið með hjónunum Beverly og Einari Gíslasyni sem voru dagforeldrar og leikskólakennarar í Garðabæ, eftir ábendingu frá manni sem vistaður hafði verið á Hjalteyri norðið fyrir harðræði af þeirra hálfu á vistheimili á Hjalteyri. |
2021 | 57 | Sænska þingið staðfesti í atkvæðagreiðslu í morgun að Magdalena Andersson verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar. Hún er fyrsta konan sem gegnir þessu embætti. | Atkvæðagreiðslan í sænska þinginu í morgun hefði vart getað staðið tæpar. 117 þingmenn kusu með henni og 57 sátu hjá, sem gera 174 atkvæði. Einnig kusu 174 þingmenn gegn því að hún tæki við embættinu. Í Svíþjóð eru lögin hins vegar þannig að kandídat þarf ekki atkvæði meirihluta þingmanna, heldur má meirihluti þingmann... | Sænska þingið staðfesti í morgun að Magdalena Andersson verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar. Aðeins munaði nokkrum vikum að konur væru forsætisráðherrar á sama tíma á öllum Norðurlöndunum. |
2021 | 57 | Opið hús er til klukkan þrjú í dag í Laugardalshöll í örvunarskammt fyrir alla þá sem hafa verið fullbólusettir gegn kórónuveirunni í fimm mánuði eða lengur. Framkvæmdastjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að aðsóknin sé fín. Hundrað fjörutíu og sjö greindust með veiruna innanlands í gær. | Allir sem voru bólusettir 24. júní eða fyrr eru boðnir velkomnir. Fólk yfir sjötugu getur komið ef þrír mánuðir eru liðnir frá seinni skammti grunnbólusetningar og fólk sem fékk bóluefni Janssen ef meira en fjórar vikur eru liðnar frá bólusetningu.
Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, s... | Opið hús er í örvunarskammt í Laugardalshöll í dag. Framkvæmdastjóri heilsugæslunnar segir að mæting sé góð. |
2021 | 58 | Formenn stjórnarflokkanna segja einungis dagaspursmál hvenær ný ríkisstjórn verður kynnt. Ekki er endanlega búið að skipta verkum milli flokkanna. | Formennirnir treystu sér ekki til að fullyrða hvort fundur ríkisstjórnarinnar í morgun hafi verið síðasti fundur þessarar ríkisstjórnar. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins segir lítið eftir af viðræðunum.
Skipting ráðuneyta liggur ekki fyrir og segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að það muni ekki... | Ný ríkisstjórn verður kynnt á næstu dögum en formenn stjórnarflokkanna segir að skipting ráðuneyta muni ekki liggja fyrir fyrr en ný stjórn verður kynnt. |
2021 | 58 | Forsætisráðherra segir frásagnir af ofbeldi á börnum á Vistheimilinu á Hjalteyri sláandi. Það hafi verið ákvörðun vistheimilanefndar að rannsaka ekki heimilið. | null | Forsætisráðherra segir frásagnir af ofbeldi á börnum á Vistheimilinu á Hjalteyri sláandi. Það hafi verið ákvörðun vistheimilanefndar að rannsaka ekki heimilið. |
2021 | 58 | Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segist sorgmæddur yfir fréttum undanfarinna daga eftir sýningu myndbands alþjóðlegra dýraverndunarsamtaka sem virðist sýna íslenska hrossabændur sem stunda blóðmerabúskap fara illa með hrossin. Nú sé beðið niðurstöðu rannsóknar Matvælastofnunar á málinu. | Bara sorg og maður er forviða á því hvernig fólk getur gengið fram í þessum efnum. Þetta er þeim sem þarna koma að til háborinnar skammar.
Við bíðum eftir því með hvaða hætti stofnunin hyggst leggja málin upp.
En er ekki ljóst að það er pottur brotinn í eftirliti þegar þetta hefur viðgengist í mörg ár og það þarf erlen... | null |
2021 | 58 | Smáframleiðendur til sveita eru uggandi eftir að Pósturinn stórhækkaði gjaldskrá á pakkasendingum til og frá dreifbýli. | Formaður Samtaka smáframleiðenda matvæla segir hækkun á gjaldskrá Póstsins í dreifbýli koma illa við félagsmenn. Pakki sem áður kostaði þúsund krónur að senda kostar nú 1600 krónur. Það muni um slíkt fyrir jólin þegar senda þurfi marga litla pakka.
Pósturinn breytti gjaldskrá í byrjun nóvember, afnam eitt sendingargjal... | Smáframleiðendur til sveita eru uggandi eftir að pósturinn stórhækkaði gjaldskrá á pakkasendinum til og frá dreifbýli. |
2021 | 58 | Starfsemi fimm hrossabænda sem stunduðu blóðtöku úr merum hefur á undanförnum árum verið stöðvuð og hafa þeir ekki fengið leyfi til að hefja starfsemi að nýju. Þetta segir dýralæknir hjá Matvælastofnun sem jafnframt bendir á að starfsemin sé ekki leyfisskyld samkvæmt lögum. | Svissnesk dýraverndarsamtök frumsýndu í gær myndband á Youtube sem sýnir verklag við blóðtöku úr fylfullum hryssum. Sigríður Björnsdóttir, sérgreinadýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun segir á hendi stofnunarinnar að hafa ytra eftirlit með starfsemi þar sem blóðtaka fer fram og að Matvælastofnun rannsaki nú myn... | Matvælastofnun hefur fimm sinnum stöðvað starfsemi þar sem blóðtökur úr merum eru stundaðar vegna óviðunadi aðbúnaðs. Enginn þessara bænda hefur fengið leyfi að nýju. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segist sorgmæddur yfir fréttunum. |
2021 | 59 | Tíu til tuttugu daga útgöngubann er gengið í gildi í Austurríki. Bólusettir jafnt sem óbólusettir landsmenn eiga að halda sig heima að mestu. Aðgerðum til að draga úr COVID-19 var mótmælt víða í Evrópu um helgina. | Ströngustu sóttvarnareglur sem gripið hefur verið til í vestanverðri Evrópu síðustu mánuði gengu í gildi í Austurríki í dag. Andstæðingar þeirra segja engu líkara en að þeir búi í einræðisríki.
Óbólusettir jafnt sem bólusettir Austurríkismenn eiga að halda sig heima næstu tíu til tuttugu daga til að draga úr áhrifum fj... | Tíu til tuttugu daga útgöngubann er gengið í gildi í Austurríki. Bólusettir jafnt sem óbólusettir landsmenn eiga að halda sig heima að mestu. Aðgerðum til að draga úr COVID-19 var mótmælt víða í Evrópu um helgina. |
2021 | 59 | Að minnsta kosti fimm eru látnir og 40 slasaðir eftir að jeppa var ekið á miklum hraða gegnum jólaskrúðgöngu í miðborg Waukesha í Wisconsinríki í Bandaríkjunum í gær. Einn er í haldi, grunaður um ódæðið. | Tugir urðu fyrir bílnum þegar honum var ekið á ógnarhraða í gegnum skrúðgönguna. Meðal hinna slösuðu eftir ódæðið er kaþólskur prestur og börn úr sunnudagaskóla hans. Shawn Reilly, bæjarstjóri Waukesha segir samfélagið hafa orðið fyrir hryllilegri árás á degi þar sem gleðin átti að vera við völd.
Today our community fa... | Bæjarstjóri Waukesha í Wisconsin-ríki Bandaríkjanna segir samfélagið hafa orðið fyrir hryllilegri árás, á degi þar sem gleðin átti að ríkja. Í það minnsta fimm létust og tugir slösuðust eftir að jeppa var ekið á miklum hraða gegnum jólaskrúðgöngu í miðborginni. |
2021 | 59 | Alþingi kemur saman á morgun. Biðin frá kosningum til þingsetningar hefur ekki verið lengri síðan á níunda áratug síðustu aldar. | Síðast þegar leið jafn langur tími og nú milli kosninga og þingsetningar var Vigdís Finnbogadóttir forseti, Davíð Oddsson borgarstjóri og Þorsteinn Pálsson tók við taumunum í forsætisráðuneytinu af Steingrími Hermannssyni.
Alþingi kemur saman á morgun í fyrsta skipti frá 6. júlí. Þá verður liðinn lengsti tími í yfir 30... | Alþingi kemur saman á morgun. Þá verður niðurstaða undirbúningskjörbréfanefndar lögð fram. Biðin frá kosningum til þingsetningar hefur ekki verið lengri síðan á níunda áratug síðustu aldar. |
2021 | 59 | Evrópski seðlabankinn hyggst ekki bregðast við verðbólguskoti í álfunni með því að hækka stýrivexti. Það er öfugt við nálgun Seðlabanka Íslands. | 0,5 prósentustiga vaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku hefur sætt gagnrýni víða þótt hún hafi verið viðbúin. Verkalýðshreyfingin hefur farið fremst í flokki og í Silfrinu í gær sagði Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar að ef Seðlabanki þyrfti að ráðast í hraðar hækkanir væri misbrestur í kerfinu. Lilj... | null |
2021 | 59 | Íslenskur talmeinafræðingur í Danmörku fær ekki að hjálpa til við að grynnka á löngum biðlistum því Sjúkratryggingar neita að gera við hann samning. Talmeinafræðingar megi ekki veita þjónustu frá útlöndum jafnvel þó aðeins sé um fjarþjónustu að ræða. | Þrátt fyrir skort á talmeinafræðingum og langa biðlista neita Sjúkratryggingar að semja við íslenskan talmeinafræðing sem hyggst veita fjarþjónustu líkt og margir kollegar hennar. Ástæðan er sú að hún og hennar tölva eru í Kaupmannahöfn.
Sesselja Björg Stefánsdóttir er talmeinafræðingur og býr í Kaupmannahöfn. Hún óska... | Íslenskur talmeinafræðingur í Danmörku fær ekki að hjálpa til við að grynnka á löngum biðlistum því Sjúkratryggingar neita að gera við hann samning. Talmeinafræðingar megi ekki veita þjónustu frá útlöndum jafnvel þó aðeins sé um að ræða fjarþjónustu. |
2021 | 59 | Sameinuðu þjóðirnar eru ásakaðar um að hafa hunsað bréf frá aðstandendum þeirra sem létust þegar gríðarleg, mannskæð sprenging varð á hafnarsvæðinu í Beirút, höfuðborg Líbanon í ágúst á síðasta ári. | Lögmannstofa hefur þrisvar sent Sameinuðu þjóðunum beiðni um aðstoð við opinbera rannsókn á ástæðum sprengingarinnar sem olli gríðarlegu tjóni og varð 219 að bana. Rannsóknin hefur tafist verulega vegna deilna og ásakana í báðar áttir og því er enginn nokkru nær um hver beri ábyrgð á því sem átti sér stað.
Viku eftir a... | null |
2021 | 60 | Kínverskur ríkisfjölmiðill hefur um helgina birt tvö myndbönd af kínversku tenniskonunni Peng Shuai, þar sem hún sést brosandi og hress. Ekkert lát er þó á þrýstingi, víða að úr heiminum, á kínversk stjórnvöld vegna málsins, því ekkert spurðist til hennar eftir að hún greindi frá því að fyrrverandi varaforseti Kína haf... | Ritstjóri Global Times birti í dag myndband þar sem sjá má Peng á opnunarhátíð á tennismóti fyrir unglinga. Þá má einnig sjá hana veita krökkum eiginhandaráritanir. Í gær voru birt myndbönd af henni á veitingastað með þjálfara sínum og vinum. Erlendir fjölmiðlar greina frá því að svo virðist sem samræður þeirra séu svi... | null |
2021 | 60 | Hundrað og sautján manns greindust með covid í gær samkvæmt bráðabirgðatölum, þar af var rúmlega helmingur í sóttkví. Skemmtistað í miðborg Reykjavíkur var lokað í nótt vegna brots á sóttvarnalögum. | Af þeim 117 greindust fimm á landamærunum og voru 65 í sóttkví við greiningu. Núna eru 1.775 í einangrun vegna covid og 2.327 í sóttkví. Laust fyrir klukkan eitt í nótt hafði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afskipti af skemmtistað í miðborg Reykjavíkur, en 50 manns voru á staðnum, en samkvæmt reglugerð áttu síðustu gest... | Eitthundrað og sautján kórónuveirusmit greindust í gær og voru sextíu og fimm í sóttkví. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt tveimur tímum eftir heimilaðan afgreiðslutíma. Búið er að takmarka heimsóknir á Umdæmissjúkrahús Austurlands eftir að smit greindist hjá starfsmanni. |
2021 | 60 | Kona sem brotnaði illa á úlnlið eftir að hafa dottið á línuskautum á rétt á bótum úr starfsábyrgðartryggingu lögmanna sem konan fól að gæta hagsmuna sinna eftir slysið. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar vátryggingamála sem kemst að þeirri niðurstöðu að lögmennirnir hafi sýnt vanrækslu með því að kanna ekki hvort sly... | Slysið varð fyrir rúmum fjórum árum. Konan taldi sig ekki hafa fengið rétta meðferð hjá heilbrigðiskerfinu og í framhaldinu leitaði hún til lögmannsstofu til að kanna rétt sinn vegna meintra læknamistaka.
Í málskoti sínu til nefndarinnar segir hún að lögmennirnir hafi jafnframt bent á að hún ætti mögulega einnig bótaré... | null |
2021 | 60 | Metfjöldi fólks úr öllum starfsstéttum í Bandaríkjunum og víðar á vesturlöndum hefur sagt upp störfum síðustu mánuði. Þrír af hverjum hundrað Bandaríkjamönnum skiluðu inn uppsagnarbréfi í september. | Vestan hafs er nú talað um mikinn vinnuaflsskort og ástandið jafnvel kallað uppsögnin mikla, skírskotun í kreppuna miklu frá því fyrir tæpri öld. Í tölulegri samantekt Fortune segir að alls hafi 4,4 milljónir sagt upp störfum og höfðu uppsagnir ekki verið fleiri í einum mánuði frá því í desember árið 2000.
Umfjöllun Ha... | null |
2021 | 60 | Aldurshópurinn 6-12 ára er langfjölmennastur í einangrun með Covid. Því er mikið að gera á Barnaspítalanum en það er ekki það eina sem herjar á börnin. Ragnar Bjarnason yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins segir að auk Covid séu margar öndunarfærasýkingar að ganga og að þær séu fyrr á ferðinni í vetur. | Það er búið að vera mjög mikið af pestum. Það er búið að vera veira sem heitir Human metaprima veira sem gefur einkenni sem er lík RS-veiru, einnig eru aðrar kórónuveirur en covid í gangi og svo er núna mjög skæð magapest af völdum Noro-veiru. þannig það er mikið að gera.
Já þetta er óvanalegt að þetta fari allt saman,... | null |
2021 | 60 | Ríkið hefur ítrekað velt niðurskurði yfir á sveitarfélög með tilfærslu verkefna til þeirra án þess að nægt fjármagn fylgi, nú síðast málefnum fatlaðra. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Silfrinu í morgun. Sveitarfélög séu orðin háð auknum skatttekjum sem fylgja hækkandi fasteignaverði. | null | Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkið sníða sveitarfélögum svo þröngan stakk að þau séu orðin háð auknum skatttekjum sem fylgja hækkandi fasteignaverði. Nægt fjármagn hafi ekki fylgt með tilfærslu verkefna frá ríki. |
2021 | 60 | Nýju þróunarverkefni Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar er ætlað að létta álagi af heimilum fólks með heilabilun og bæta lífsgæði þess og aðstandenda sömuleiðis. Vonir standa til að fljótlega verði hægt að fjölga þeim sem njóta þjónustunnar. Tilgangurinn er að fólk geti búið á heimilum sínum sem lengst. | Verkefnið felst í félagslegum stuðningi sem veittur verður á kvöldin, um helgar eða þegar fólk kýs, að sögn Berglindar Guðmundsdóttur skrifstofustjóra öldrunarmála á velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Og að því sögðu mun stuðningurinn auðvitað líka nýtast aðstandendum þeirra sem eru oft í mikilli þörf fyrir að það sé auk... | null |
2021 | 60 | Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsir miklum áhyggjum af stöðu kórónuveirufaraldursins í Evrópu en ný bylgja smita gengur nú af fullum þunga yfir álfuna. Umdæmisstjóri stofnunarinnar hvetur til aukinnar bólusetningar. | Hans Kluge, umdæmisstjóri stofnunarinnar í Evrópu varar við því að hálf milljón gæti fallið í valinn af völdum sjúkdómsins í vetur nema gripið verði til aðgerða. Hann segir að aukin grímunotkun geti þegar breytt miklu. Nokkur ríki álfunnar hafa greint frá metfjölda smita og gripið til útgöngubanns af mismiklum þunga.
S... | null |
2021 | 60 | Óeirðir brutust út í Haag í Hollandi í nótt á mótmælum gegn hertum takmörkunum vegna covid-faraldursins. Þar íhuga stjórnvöld hertari aðgerðir sem beinast gegn óbólusettum. | Óeirðaseggir hentu grjóti og flugeldum að lögreglu og kveiktu i reiðhjólum. Neyðarástandi var lýst yfir í borginni og sjö, hið minnsta, voru handteknir. Hálfgert útgöngubann er í gildi í landinu, börum og veitingastöðum skal loka klukkan átta á kvöldin og áhorfendur eru ekki leyfðir á íþróttaviðburðum. Í bíðgerð er að ... | Óeirðir brutust út í hollensku borginni Haag í nótt þegar fólk mótmælti hertum takmörkunum vega faraldursins. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsir þungum áhyggjum af stöðu faraldursins í Evrópu. |
2021 | 61 | Landsréttur sýknaði í gær íslenska ríkið af ríflega níutíu milljóna króna kröfu fyrrverandi landeigenda á Geysissvæðinu. Þeir höfðu krafist þess að ríkið greiddi verðbætur ofan á kaupverðið. | Íslenska ríkið keypti árið 2016 75% hlut Geysissvæðisins í Haukadal, en fyrir hafði ríkið átt fjórðung. Í kaupsamningnum var ekki kveðið á um kaupverð heldur samið um að óháðir matsmenn skyldu fengnir til að ákvarða það.
Matsgerðin tók nokkurn tíma og tafðist enn þegar ríkið áfrýjaði upphaflegri ákvörðun matsmanna til ... | null |
2021 | 61 | Bandaríkjaforseti kveðst reiður vegna sýknudóms yfir ungum manni sem skaut þrjá, þar af tvo til bana í mótmælum í fyrra. Þó beri að virða niðurstöðuna. Niðurstöðu kviðdómsins var mótmælt á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum í gærkvöld. | We the jury find the defendant, Kyle Rittenhouse, not guilty.
Kviðdómurinn sýknar Kyle Rittenhouse af ákærunni, sagði fulltrúi kviðdómenda í gær. Þannig fór með allar fimm ákærurnar á hendur Rittenhouse sem er aðeins átján ára gamall. Hann býr í Illinois-ríki en gerði sér ferð til Wiscounsin-ríkis í ágúst í fyrra vopna... | Joe Biden, Bandaríkjaforseti kveðst reiður yfir því að ungur maður sem skaut þrjá á mótmælum í fyrra hafi verið sýknaður. Forsetinn hvetur til stillingar vegna málsins. Niðurstöðu kviðdómsins var mótmælt í gær. |
2021 | 61 | Forseti Hvíta Rússlands útilokar ekki að hersveitir hans hafi aðstoðað flóttafólk við að komast yfir til Póllands. Hann þvertekur fyrir að því hafi verið boðið að koma. | Í einkaviðtali Steve Rosenberg, fréttamanns breska ríkisútvarpsins við Alexander Lúkasjenka forseta segir hann að hermenn Hvíta Rússlands hafi vitað að flóttafólkið vildi komast til Þýskalands. Við erum Slavar og við erum góðhjartað fólk, segir forsetinn og bætir við að kannski hafi einhver hjálpað fólkinu, hann ætli ... | null |
2021 | 61 | Þarna heyrðum við Dag B. Eggertsson borgastjóra fella Oslóartréð í Heiðmörk í morgun. Tréð mun prýða Austurvöll yfir hátíðirnar og verða jólaljósin tendruð á sunnudag eftir viku, fyrsta sunnudag í aðventu. Sævar Hreiðarsson skógarvörður í Heiðmörk aðstoðaði borgarstjóra við verkið. | null | Það var jólalegt í Heiðmörk í morgun þegar Oslóartréð sem prýða mun Austurvöll á aðventunni var fellt. |
2021 | 61 | Runólfur Pálsson, yfirlæknir á Landspítala segist binda vonir við nýtt Covid-lyf sem lyfjastofnun Íslands er með til skoðunar að veita undanþágu fyrir hér á landi. Síðustu þrjá daga voru í fyrsta sinn fleiri óbólusettir en bólusettir inniliggjandi á spítala. Í gær voru þrettán óbólusettir og tíu bólusettir á sjúkrahúsi... | Þetta hefur undanfarna daga verið þokast í þá átt, lengi val var þetta þriðjungur sem var óbólusettur sem þarfnast innlagnar. Svo hefur þetta verið að þokast upp á við að undanförnu, núna er þetta komið í yfir helming þeirra sem liggja inni.
En afhverju er þetta hlutfall að fara svona upp á við, hlutfall óbólusettra?
v... | null |
2021 | 61 | Meirihluti ungs fólks telur hættur steðja að börnum á netinu svo sem í gegnum kynferðislegt efni eða neteinelti. Fæst ungmenni treysta samfélagsmiðlum til að finna réttar og áreiðanlegar upplýsingar. Þetta kemur fram í alþjóðlegri könnun UNICEF, sem var gerð í tilefni af alþjóðadegi barna, sem haldinn er í dag. | Könnunin náði til 21 þúsund einstaklinga í 21 landi í Afríku, Asíu, Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku. Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í dag, á alþjóðadegi barna.
Að meðaltali telja nærri 75% ungmenna að stjórnvöld eigi að grípa til harðari aðgerða til að taka á loftslagsbreytingum. Í lág- og millitekjuríkjum, þar... | Ungt fólk sýnir meiri stuðning við jafnréttisbaráttu minnihlutahópa en eldri kynslóðir, samkvæmt alþjóðlegri könnun UNICEF, sem birt var í dag í tilefni af alþjóðadegi barna. Ung kona segir mikilvægt að Íslendingar átti sig á að rasismi fyrirfinnst hérlendis og berjist gegn honum. |
2021 | 61 | Boðað hefur verið til mótmæla í nokkrum borgum Evrópuríkja í dag gegn hertum sóttvarnaaðgerðum. Þrír ungir menn í Austurríki viðurkenndu við yfirheyrslur að hafa ætla að valda lögreglumönnum alvarlegum skaða meðan á mótmælum gegn samkomutakmörkunum stóð á dögunum. | Mennirnir, sem búsettir eru í borginni Linz í norðanverðu landinu segjast hafa ætlað að hella bensíni yfir lögreglumenn og bera eld að þeim. Eins viðurkenndu þeir allir að hafa kveikt í lögreglubíl um miðjan mánuðinn. Þeir segjast hafa litið á lögreglumenn sem óvini sína þar sem þeirra hlutverk var að tryggja að ströng... | Boðað hefur verið til mótmæla í nokkrum borgum Evrópuríkja í dag gegn hertum sóttvarnaaðgerðum. |
2021 | 62 | Skammdegishimininn yfir landinu bauð upp á mikið sjónarspil í morgun þegar jörðin varpaði skugga sínum á tunglið svo úr varð svokallaður deildarmyrkvi. Myrkvinn hófst þegar klukkan var nítján mínútur gengin í átta og náði hámarki um þrjár mínútur yfir níu. Þegar mest var þakti skuggi jarðar um 97 prósent af tunglinu. U... | Svona myrkvar eiga sér stað tvisvar til þrisvar á ári. Við þurfum bara að vera á réttum stað á réttum tíma til þess að sjá hann. Það er algengara að við fáum svona deildarmyrkva frekar en almyrkva. Þannig að þetta gerist annað slagið. Þetta er ekkert mjög sjaldgæft en á tilteknum stöðum á jörðinni ekkert rosalega oft h... | null |
2021 | 62 | Allt stefnir í að metfjöldi áhorfenda verði á Evrópumeistaramóti kvenna í fótbolta næsta sumar. Enn eru til miðar á leiki Íslands á mótinu. | Í fréttatilkynningu sem kom frá Evrópska knattspyrnusambandinu í dag kemur fram að sótt hafi verið um meira en 268 þúsund miða í miðalottóinu en þeir miðar bætast við um 162 þúsund miða sem seldir voru í forsölu fyrr á árinu. Þetta þýðir að áhorfendamet sem sett var á mótinu árið 2017 í Hollandi verður líklegast slegið... | null |
2021 | 62 | Upprunalegt prentað eintak af stjórnarskrá Bandaríkjanna var selt á uppboði hjá Sotheby's uppboðshúsinu í gær fyrir 43 milljónir Bandaríkjadala eða jafngildi ríflega 5,6 milljarða íslenskra króna. | Aldrei áður hefur fengist jafnhátt verð fyrir sögulegt skjal að því er fram kemur á vef uppboðshússins. Eintakið sem selt var í gær er eitt af ellefu sem enn eru til. Öll hin eintökin eru varðveitt á söfnum. Skjalið er 11 blaðsíður og var undirritað af landsfeðrum Bandaríkjanna í Fíladelfíu 17. september 1787. Það var ... | null |
2021 | 62 | Fimmtán hundruð manns hafa undirritað stefnu á hendur íslensku bönkunum vegna meintra ólögmætra lána. Formaður Neytendasamtakanna telur íslenska banka hafa ofreiknað sér vexti fyrir allt að hundrað milljarða króna. | Formaður Neytendasamtakanna segir einstaka banka hafa neitað að gefa upplýsingar sem þurfi vegna stefnu sem verið sé að undirbúa á hendur þeim. Fimmtán hundruð manns hafa undirritað stefnu á hendur íslensku bönkunum vegna meintra ólögmætra lána. Formaður Neytendasamtakanna vonast til að stefna bönkunum á aðventunni.
Fo... | null |
2021 | 62 | Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum segir það ekki leysa mönnunarvanda spítalans að ráða erlenda hjúkrunarfræðinga hingað til lands. Það sé ekki stefna spítalans að leita markvisst eftir fagfólki í útlöndum. | Hjúkrunarfræðingar í samtals fimm stöðugildum hafa sagt upp störfum á bráðamóttöku Landspítalans. Mikill skortur er á heilbrigðisstarfsfólki og allra mest vantar hjúkrunarfræðinga.
Um 150 erlendir hjúkrunarfræðingar vinna nú á Landspítalanum, flestir frá Filippseyjum. Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á... | null |
2021 | 62 | Tíu til tuttugu daga útgöngubann gengur í gildi í Austurríki frá og með næsta mánudegi. Landsmönnum verður gert skylt frá fyrsta febrúar að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni. | Stjórnvöld í Austurríki fyrirskipuðu í dag að allir landsmenn, óbólusettir jafnt sem bólusettir, skuli halda sig heima í tíu til tuttugu daga frá og með næsta mánudegi. Frá fyrsta febrúar næstkomandi verður öllum skylt að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni.
Alexander Schallenberg kanslari tilkynnti þessa ákvörðun s... | Tíu til tuttugu daga útgöngubann gengur í gildi í Austurríki frá og með næsta mánudegi. Landsmönnum verður gert skylt frá fyrsta febrúar að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni. |
2021 | 62 | Íbúar á Úthéraði óttast bæði sjón- og örplastmengum frá vindmyllum sem Orkusalan áformar að reisa við Lagarfossvirkjun. | Mjög skiptar skoðanir eru um ágæti þess að reisa tvær stórar vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Úthéraði. Íbúar óttast sjónmengun og örplast sem losnar af spöðunum en stuðningsmenn segja mikilvægt að framleiða græna orku.
Orkusalan hefur fengið leyfi fyrir 50 metra háu tilraunamastri til að meta vindorku við Lagarfossvi... | Íbúar á Úthéraði óttast bæði sjón- og örplastmengum frá vindmyllum sem Orkusalan áformar að reisa við Lagarfossvirkjun. |
2021 | 63 | Fjölmenn mótmæli gegn valdaráni hersins í Súdan hafa staðið linnulaust síðan í gær. Að minnsta kosti fimmtán voru skotnir til bana og margir særðust. | Að minnsta kosti fimmtán féllu og tugir særðust þegar þúsundir íbúa Khartoum, höfuðborgar Súdans, komu saman í gær og mótmæltu valdaráni hersins í síðasta mánuði. Mótmælin standa enn. Engan bilbug er að finna á herstjórninni, þrátt fyrir að valdaránið hafi verið fordæmt víða um heim.
Efnt var til aðgerðanna í tilefni þ... | Fjölmenn mótmæli gegn valdaráni hersins í Súdan hafa staðið linnulaust síðan í gær. Að minnsta kosti fimmtán voru skotnir, og margir særðust. |
2021 | 63 | Jakob Elleman Jensen, formaður Venstre, stærsta stjórnarandstöðuflokks Danmerkur, segir Mette Frederiksen forsætisráðherra, fara með ósannindi um innihald sms-skilaboða sem var eytt úr síma hennar. | Dönsku lögreglunni hefur ekki tekist að endurheimta sms-skilaboð úr síma Mette Frederiksen. Þetta sagði lögreglan ríkisstjórninni á föstudag í síðustu viku en upplýsingar voru ekki gerðar opinberar fyrr en í gær, daginn eftir sveitarstjórnarkosningar í Danmörku. Ríkisstjórnin segir að ekki hafi verið unnt að birta uppl... | Jakob Elleman Jensen, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Danmerkur, segir Mette Frederiksen forsætisráðherra skrökva til um innihald sms-skilaboða sem eytt var úr síma hennar. Stjórnin hafi leynt upplýsingum fram yfir sveitarstjórnarkosningar. |
2021 | 63 | Ungt fólk hefur hrakist af leigumarkaði í covid-faraldrinum og hefur í vaxandi mæli þurft að flytja aftur heim í foreldrahús. Vísbendingar eru um að dregið hafi úr framboði á leiguhúsnæði á síðustu mánuðum. | Þetta kemur fram í könnun á vegum hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stöðuna á leigumarkaði. Almennt hefur leigjendum fækkað á síðustu tveimur árum. Margir hafa nýtt sér hagstæð lánakjör til að kaupa húsnæði en aðrir hafa hrakist af markaðinum.
Karlotta Halldórsdóttir hagfræðingur hjá stofnuninni segir að u... | Staða ungs fólks á húsleigumarkaði hefur versnað í Covid faraldrinum og margir hafa neyðst til að flytja aftur í foreldrahús. Þetta sýnir ný könnun. |
2021 | 63 | Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir viðbúið að þær launahækkanir sem eru framundan á almennum vinnumarkaði leiði til aukinnar verðbólgu og því hafi ekki komið á óvart að Seðlabankinn hafi ákveðið að hækka stýrivexti. | Stýrivextir voru hækkaðir um núll komma fimm prósentustig í gær og er nú komnir í tvö prósent.
Verðbólguhorfur hafa farið versnandi og Ásgeir Jónsson seðlabankanstjóri segir að þær launahækkanir sem eru framundan séu ekki í takt við efnahagslegan raunveruleika.
Ásdís Kristjánsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atv... | null |
2021 | 63 | Ríkisstjórnin treystir sér ekki til að hefja þingstörf af fullum þunga vegna þess að fjárlagafrumvarpið er ekki tilbúið. Þetta segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Ríkisstjórnin hafi nýtt sér ástandið í Norðvesturkjördæmi sem skjól. | Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna hittust á fundi nú fyrir hádegi til að ræða stöðuna sem upp sé komin þar sem ekki stendur til að ræða fjárlagafrumvarpið fyrr en í byrjun desember. Þau segja ríkisstjórnina hafa nýtt sér ástandið í Norðvesturkjördæmi sem skjól.
Þingflokksformenn allra flokka funduðu í gær með... | Ríkisstjórnin treystir sér ekki til að hefja þingstörf af fullum þunga vegna þess að fjárlagafrumvarpið er ekki tilbúið. Þetta segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Ríkisstjórnin hafi nýtt sér ástandið í Norðvesturkjördæmi sem skjól. |
2021 | 64 | Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,5 prósentur í morgun. Hluti hækkunarinnar er rakinni til launahækkana í kjarasamningum sem Seðlabankinn segir á skjön við efnahagslegan veruleika. | Þetta er fjórða stýrivaxtahækkunin frá því í maí og sú brattasta til þessa. Vextir stóðu í 0,75 prósentum í maí en verða nú 2 prósent. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir hækkunina nauðsynlega til að koma böndum á hagkerfið. Kæla þarf húsnæðismarkaðinn og kveða niður verðbólgu. Hækkunin sé til marks um að vel hafi ... | Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,5 prósentur í morgun, með fjórðu hækkuninni á árinu. Ein ástæðan er launahækkanir í kjarasamningum sem seðlabankastjóri segir úr takti við veruleikann. Forseti ASÍ segir hækkunina hleypa hörku í komandi kjaraviðræður. |
2021 | 64 | Kirkjuklukka frá tólftu öld mun mögulega hringja inn jólin í Skálholti í ár en engin klukka er nú í turninum. því kirkjuturninn er klukkulaus. Tímabær viðgerð stendur nú yfir en tuttugu ár eru frá því danska klukkan hrundi í gólfið á Skálholtshátíð og síðan hafa þær bilað ein af annarri. | Sú fyrsta datt út. Hún hrundi á gólfið við setningu og messuupphaf á Skálholtshátíð 2002 og fór í nokkuð marga mola og ekki hægt að gera við hana. Þær hafa týnt tölunni eða hætt að hljóma með ýmsu móti, ýmsar ástæður.
Segir Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti en það er verndarsjóður Skálholtsdómkirkju sem sendu... | Skálholtskirkjuturn er klukkulaus eftir að klukkurnar hafa bilað ein af annarri. Til greina kemur að notast við klukku frá tólftu öld til að hringja inn jólin í Skálholti þetta árið. |
2021 | 64 | Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins skoðar nú ýmsar leiðir til að ná til þeirra sem ekki hafa þegið boð um kórónuveirubólusetningu. Verið er að greina þennan hóp og til greina kemur að aka um og bjóða fólki bólusetningu. Framkvæmdastjóri hjúkrunar segir brýnt að ná til þessa hóps sem fyrst. | 144 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær, þar af 78 utan sóttkvíar. Undanfarna daga hafa óbólusettir verið yfir 40% þeirra sem greinast, en um 10% fólks á bólusetningaraldri hefur ekki þegið boð um bólusetningu. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að ... | Ungir karlar eru fjölmennastir í hópi þeirra sem ekki hafa þegið bólusetningu. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins kannar nú ýmsar leiðir til að ná til þessa hóps, ein þeirra er með strætó. 144 smit greindust hér í gær. |
2021 | 64 | Um fimmtán prósent landsmanna vilja að sóttvarnaraðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins verði aflétt samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningsmenn Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins voru líklegastir til að vilja að öllum aðgerðum verði hætt. | Könnunin var gerð dagana 4. til 14. nóvember. Þegar hún hófst voru litlar takmarkanir í gildi og þá stóð til að aflétta öllum sóttvarnarnaraðgerðum um miðjan nóvember. Næstu daga urðu miklar breytingar á aðgerðum á stuttum tíma. Meirihluti svarenda vildi að sóttvarnaraðgerðir yrðu hertar þegar Gallup náði sambandi við ... | Yfir helmingur landsmanna vill hertar sóttvarnaraðgerðir, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi. Fjölgun smita hafði engin áhrif á fjölda þeirra sem vill að sóttvarnaraðgerðum verði aflétt. |
2021 | 64 | Forseti Alþýðusambands Íslands segir ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti hleypi meiri hörku í komandi kjaraviðræður. Formaður Bandalags háskólamanna telur að vaxtahækkunin skili sér beint út í verðlag og bitni verst á ungu fólki sem er nýkomið inn á fasteignamarkað. | Mikil áhersla var lögð á lækkun stýrivaxta við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði fyrir tveimur árum. Samningarnir renna út í haust og viðbúið að hækkanir síðustu mánaða hafi áhrif á komandi kjaraviðræður.
Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins segir að vaxtahækkunin í morgun þurrki út kjarasamningsbundnar laun... | null |
2021 | 64 | Efni úr Fjarðarheiðargöngum verður mögulega nýtt í landfyllingar á Seyðisfirði. Þannig yrði hægt að skapa rými undir atvinnuhúsnæði sem skemmdist í aurskriðunni í desember eða þau sem þarf að flytja vegna hættu á skriðuföllum. | Samráðshópur stjórnvalda um viðbrögð við hamförunum á Seyðisfirði leggur til að efni sem fellur til við gerð Fjarðarheiðarganga verði nýtt í landfyllingu. Þannig megi skapa lóðir til undir atvinnuhúsnæði á öruggum svæðum.
Sagði Gauti Jóhannesson. Rúnar Snær Reynisson talaði við hann.
Seyðfirðingum virðist vandi á höndu... | Efni úr Fjarðarheiðargöngum verður mögulega nýtt í landfyllingu á Seyðisfirði. Þannig yrði hægt að skapa rými undir atvinnuhúsnæði sem skemmdist í aurskiðunni í desember eða þarf að flytja vegna hættu á skriðuföllum. |
2021 | 64 | Stjórnvöld í Póllandi vara við því að ástandið á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands geti staðið mánuðum saman, jafnvel í nokkur ár. Hópur manna reyndi að komast yfir landamærin í nótt. | Pólverjar segja að gera megi ráð fyrir að ástandið á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands geti varað mánuðum og jafnvel árum saman. Hælisleitendur reyndu trekk í trekk að komast yfir til Póllands í gær. Til átaka hefur komið.
Mariusz Blaszczak varnarmálaráðherra greindi frá því í viðtali við pólska útvarpsstöð í dag ... | Stjórnvöld í Póllandi vara við því að ástandið á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands geti staðið mánuðum saman, jafnvel í nokkur ár. Hópur manna reyndi að komast yfir landamærin í nótt. |
2021 | 64 | Ari Freyr Skúlason hefur spilað sinn síðasta leik fyrir íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Hann tilkynnti þetta á Twitter nú rétt fyrir hádegi. | Kynslóðaskiptin í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta halda áfram því í morgun tilkynnti Ari Freyr Skúlason að hann sé hættur að spila fyrir liðið.
Ari Freyr lék 83 landsleiki fyrir Ísland og var hluti af hópnum sem komst í fyrsta sinn á EM og HM. Ari lék í stöðu vinstri bakvarðar með liðinu. Hann er á mála hjá Norrkö... | Ari Freyr Skúlason hefur leikið sinn síðasta leik með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Hann tilkynnti þetta á Twitter nú rétt fyrir hádegi. |
2021 | 65 | Hegðun ferðamanna á tímum heimsfaraldurs hafur gjörbreyst og hver ferðamaður eyðir miklu meiru en áður segir formaður Samtaka ferðaþjónustunna. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna setti í gærkvöld Ísland aftur í flokk yfir hááhættusvæði | Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að hegðun ferðamanna á tímum heimsfaraldurs hafi gjörbreyst og hver ferðamaður eyði mun meiru en áður. Þó að smitstaðan á Íslandi sé slæm virðist vera að ferðamenn séu farnir að venjast nýjum raunveruleika.
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna setti í gærkvöld Ísland aftur í flokk yfi... | null |
2021 | 65 | Börn og ungmenni horfa mest á sjónvarpsefni á ensku, og um helmingur notar ensku við tölvuleikjaspilun og á samfélagsmiðlum. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Menntavísindastofnunar fyrir Fjölmiðlanefnd, á málnotkun barna og ungmenna á afþreyingarefni, sem er birt í dag á Degi íslenskrar tungu. Samkvæmt niðurstöð... | Þrír af hverjum fjórum á framhaldsskólaaldri segist horfa oftar á bíómyndir og sjónvarpsþætti á ensku og helmingur barna í 4.-10. bekk grunnskóla. Enn meiri munur var á Youtube áhorfi, þar sem níu af hverjum tíum framhaldsskólanemum nota ensku og 3 fjórðu grunskólabarna. Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðl... | Börn og ungmenni horfa mest á sjónvarpsefni á ensku samkvæmt niðurstöðum könnunar Menntavísindastofnunar. Mestur er munurinn á Youtube áhorfi. Dagur íslenskrar tungu er í dag. |
2021 | 65 | Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur ákært Aung San Suu Kyi sem stjórnin steypti af stóli í ársbyrjun. Ákæruefnin snúa að meintu kosningasvindli á síðasta ári þar sem NLD flokkur Suu Kyi, tryggði sér meirihluta á þingi. | Verði Suu Kyi fundin sek gæti það þýtt áratugalangt fangelsi en hún er 76 ára gömul. Hún hefur verið í haldi frá valdatöku hersins í febrúar en ekki hefur verið látið uppi hvenær réttarhöld yfir henni fara fram. Upplausn hefur ríkt í landinu allar götur síðan en herstjórnin hefur brugðist ókvæða við öllu andófi og hóta... | null |
2021 | 65 | Forseti Hvíta-Rússlands vill lægja öldurnar í samskiptum við Evrópusambandið vegna þúsunda hælisleitenda sem vilja komast frá landi hans yfir til Póllands. Átök brutust út á landamærunum í dag. | Forseti Hvíta-Rússlands vill koma í veg fyrir að samskiptin við Evrópusambandið versni enn frekar vegna hælisleitenda sem vilja komast yfir til Póllands og þaðan til annarra ESB-ríkja. Átök brutust út í dag milli hælisleitenda og pólskra hermanna og lögreglumanna sem gæta landamæranna.
Hvítrússneska ríkisfréttastofan B... | Forseti Hvíta-Rússlands vill lægja öldurnar í samskiptum við Evrópusambandið vegna þúsunda hælisleitenda sem vilja komast frá landi hans yfir til Póllands. Átök brutust út á landamærunum í dag. |
2021 | 65 | Það skýrist í kvöld hvaða Evrópulið komast beint á HM í Katar á næsta ári. Evrópumeistarar Ítalíu þurfa að fara í umspil og Danir töpuðu sínum fyrsta og eina leik í undankeppninni í gær. | Spennan í C-riðlinum var mikil fyrir lokaumferðina en Ítalía og Sviss börðust um toppsæti riðilsins, liðin tvö jöfn að stigum. Ítalía mætti Norður-Írlandi en leiknum lauk með markalausu jafntefli. Á sama tíma vann Sviss Búlgaríu 4-0 og Sviss komst þar með á HM en Ítalía þarf að fara í umspil. Í F-riðlnum voru Danir þeg... | null |
2021 | 65 | null | Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í Kampala, höfuðborg Úganda, í morgun. Yfir þrjátíu særðust og eru fimm þeirra í lífshættu. Uppreisnarhreyfing sem tengist hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki hefur staðið fyrir sprengjuárásum í Úganda undanfarið. Utanríkisráðuneytið birti í dag yfirlýsingu á Facebook-s... | Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í Kampala, höfuðborg Úganda, í morgun. Yfir þrjátíu særðust í árásunum og eru fimm þeirra í lífshættu |
2021 | 67 | Umdeild breyting var gerð á lokaályktun loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem lauk í Glasgow í gærkvöld. Forseti ráðstefnunnar segir það standa tæpt að halda hlýnun jarðar undir einni og hálfri gráðu. | Viðræður um lokaútgáfu yfirlýsingar eftir ráðstefnuna drógust á langinn í gærkvöld og var þá orðalag ýmissa ákvæða sem flæktist fyrir leiðtogunum. Orðalagi hvað varðar kol var undir lok þingsins breytt úr að horfið yrði frá notkun kola, yfir í að dregið yrði úr notkun þeirra. Bæði Kínverjar og Indverjar þrýstu að orð... | Nokkur hasar var á lokametrum loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í gær. Leiðtogar eru ekki á einu máli um árangurinn frá ráðstefnunni, og sumir segja samkomulag um að halda hlýnun jarðar í skefjum standi tæpt. Umhverfisráðherra segist bera með sér kyndil vonarinnar frá Skotlandi. |
2021 | 67 | Stór hluti þeirra sem kaupa íbúðir eru fjárfestar. Forseti Alþýðusambandsins vill að samfélagið sammælist um það að íbúðir til sölu séu fyrir fólk sem þurfi þak yfir höfuðið. Ýmis loforð sem stjórnvöld gáfu í tengslum við Lífskjarasamning hafi ekki verið efnd. | Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins, segir það ekki ganga að fjárfestar og þeir sem selji gistingu í gegnum Airbnb séu þeir sem eigi stóran hluta af fasteignamarkaðnum. Samfélagið verði að ákveða að íbúðir séu fyrir fólk sem þurfi á húsnæði að halda.
Nú er farinn í gang vaxtahækkanafasi. Það er að mælast hærri verð... | Stór hluti þeirra sem kaupa íbúðir eru fjárfestar. Forseti Alþýðusambandsins vill að samfélagið sammælist um það að íbúðir til sölu séu fyrir fólk sem þurfi þak yfir höfuðið. Ýmis loforð sem stjórnvöld gáfu í tengslum við Lífskjarasamning hafi ekki verið efnd. |
2021 | 67 | Átta rúm voru tekin í notkun á endurhæfingadeild á Landakoti á fimmtudaginn. Þar með tókst að tappa að hluta af útskriftarvandanum á bráðamóttöku Landspítalans en það þarf meira til segir framkvæmdastjóri hjúkrunar. Enn vantar mjög marga hjúkrunarfræðinga til starfa á spítalanum. | En markmiðið er að fara upp í sextán á næstu vikum og við eigum eftir að manna til þess að tryggja að við getum opnað þessi átta rúm til viðbótar.
Segir Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum. Sérstaklega vantar hjúkrunarfræðinga til að hægt sé að bæta við þessum átta sjúklingum. En fleiri h... | Í vikunni var bætt við átta rúmum á Landakoti sem er hluti af átaki Landspítalans að fjölga rúmum svo hægt sé að flytja sjúklinga af göngum bráðamóttökunnar. Bæta á við fleiri rúmum en til þess þarf fleiri hjúkrunarfræðinga til starfa. |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.