year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 37 | Hertar samkomutakmarkanir sem tóku gildi á Tenerife og Gran Canaria í vikunni ættu ekki að trufla Íslendinga sem ætla verja jólunum á svæðinu. Eigandi veitingastaðar sem skipuleggur nú bæði skötu- og hangikjötsveislu á Tenerife um jólin segir ekkert að óttast. | Reikna má með því að margir af þeim hundruðum Íslendinga sem stefna á að verja jólunum á Tenerife hafi sopið hveljur þegar tilkynnt var um hertar sóttvarnarreglur á svæðinu. Breytingarnar sem tóku gildi í gær hafa mest áhrif á veitingastaði en nú mega aðeins átta sitja saman við borð nema allir gestir geti sýnt fram á ... | Hertar sóttvarnarreglur á Gran Canaria og Tenerfie ættu ekki að hafa mikil áhrif á ferðaplön Íslendinga sem stefna þangað um jólin. Árleg skötu- og hangikjötsveisla er á áætlun. |
2021 | 37 | Einn bæjarfulltrúi meirihlutans á Seltjarnarnesi gekk til liðs við minnihlutann þegar ákveðið var að hækka útsvarið úr 13,7 prósentum í 14,09 prósent við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar í morgun. Bæjarstjórinn segir engan klofning í gangi. Hún hefði frekar viljað bíða með þessa ákvörðun þar til eftir sveitarstjórnarko... | Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar Seltirninga, segir í samtali við fréttastofu að minnihlutinn hafi viljað hækka útsvarsprósentuna upp í 14,48.
Sem hefði þýtt að útsvarið hefði orðið svipað og í nágrannasveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.Þetta hafi minnihlutinn viljað gera þar sem hann taldi rek... | Útsvarið á Seltjarnesi verður hækkað í 14,09 prósent. Þetta varð ljóst við afgreiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins í morgun þegar einn bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gekk minnihlutanum á hönd. |
2021 | 38 | Ekkert hefur fundist í tölvukerfum hér á landi, sem þarf að hafa áhyggjur af, vegna öryggisgallans LOG4J. Vandinn snýr fyrst og fremst að þeim sem reka tölvukerfi. Almennir notendur geta lítið gert. | Í gær var í fyrsta sinn lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna netvár. Öryggisgallinn er metinn mjög alvarlegur. Frá því að hans varð vart í síðustu viku hefur sleitulaust verið unnið að því að komast fyrir hann og fyrirbyggja tjón af hans völdum. Það hefur gengið vel að sögn Sigurðar Sæbergs Þorsteinssonar, framkvæm... | null |
2021 | 38 | Netverslunarrisinn Amazon sætir harðri gagnrýni eftir að sex starfsmenn létust og einn slasaðist lífshættulega þegar skýstrókur eyðilagði vöruhús fyrirtækisins í Edwardsville í Illinois i Bandaríkjunum um helgina.Yfirmenn Amazon eru gagnrýndir fyrir að virða veðurspár að vettugi og tryggja ekki betur öryggi starfsfólks... | Einn þeirra sem komst lífs af var á leið inn í vöruhúsið þegar starfsfólkið fékk upplýsingar í farsíma um yfirvofandi hættu og var beðið að koma sér í skjól. Hann segir að þeim hafi verið sagt að fara inn á klósett og bíða þar. "Það var eins og járnbrautarlest færi í gegnum húsið", er haft eftir David Kosiak á fréttave... | null |
2021 | 38 | Tíu langlegupláss á geðdeild Landspítalans verða lokuð frá áramótum og fram eftir næsta ári. Sérhæfð legudeild verður þess í stað í geðdeildarbyggingu við Hringbraut. Óskemmtileg en nauðsynleg ákvörðun segir forstöðumaður geðþjónustu Landspítalans | Forstöðumaður geðþjónustu Landspítalans segir óskemmtilegt að þurfa að loka langleguplássum á geðdeild spítalans. Það sé engu að síður nauðsynlegt því ekki náist mannskapur í brýnustu öryggismönnun.
Tíu langleguplássum á Kleppi verður lokað um áramót. Metið verður á næsta ári hvernig gengur. Mannekla er ástæða lokunari... | Óskemmtileg en nauðsynleg ákvörðun, segir forstöðumaður geðþjónustu Landspítalans um lokun tíu langlegurýma á Kleppi frá áramótum og fram eftir næsta ári. Sérhæfð legudeild kemur þess í stað við Hringbraut. |
2021 | 38 | Sveitarstjórn Norðurþings hefur samþykkt að bjóða Tjörneshreppi til formlegra sameiningarviðræðna. Oddviti Tjörneshrepps segir ekki raunhæft að kosið verði um sameiningu í vor. | Tillagan var samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnar Norðurþings fyrr í mánuðinum. Aðalsteinn J. Halldórsson er oddviti Tjörneshrepps sem er eitt fámennasta sveitarfélag landsins með tæplega 60 íbúa.
Nei, það hefur ekki verið boðað til formlegra viðræðna og ég átti óformlegt samtal við einn sveitarstjórnarfulltrúa N... | null |
2021 | 38 | Blóðtaka úr íslenskum hryssum hefur hátt í þrefaldast á einum áratug. Eftirspurn eftir prótínsameind sem unnin er úr hryssnablóði til að auka frjósemi dýra hefur aukist mjög. | Blóðtaka úr íslenskum hryssum hefur aukist um sextán prósent á ári undanfarinn áratug samkvæmt upplýsingum frá líftæknifyrirtækinu Ísteka. Velflestar stóðhryssur sem skili folaldi í sláturhús, fullyrðir fyrirtækið að séu blóðhryssur. Forsvarsmenn Ísteka segja að mikil eftirspurn sé eftir frjósemislyfi unnu úr prótínsam... | Blóðtaka úr íslenskum hryssum hefur meira en fjórfaldast á einum áratug. Eftirspurn eftir prótínsameind úr blóði þeirra, til að auka frjósemi dýra, hefur aukist mjög. |
2021 | 38 | Dregið var í undanúrslit í bikarkeppni karla og kvenna í körfubolta í dag. Í kvennaflokki mætast annars vegar Njarðvík og Haukar og hins vegar Snæfell og Breiðablik. Í karlaflokki mætast Þór Þorlákshöfn og Valur í fyrri viðureigninni og hins vegar Stjarnan og Keflavík. | Valur sló út bikarmeistara Njarðvíkur í æsispennandi leik í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta í gærkvöld. Í hálfleik leiddi Njarðvík með fjórum stigum 44-40. Valsmenn hófu seinni hálfleikinn á að jafna metin og náðu forystunni í kjölfarið. Þegar innan við mínúta var eftir tókst Hauki Helga Pálssyni að s... | Dregið var í undanúrslit í bikarkeppni karla og kvenna í körfubolta í hádeginu. |
2021 | 38 | Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að það sé sanngirnismál að stjórnvöld komi til móts við þau fyrirtæki sem verða fyrir miklu tekjutapi út af samkomutakmörkunum. Veitingamenn og kráareigendur hafa kallað eftir sértækum aðgerðum. Þeir hafi þurft að þola miklar skerðingar í aðdraganda jóla sem er háannatími hjá ... | Við höfum alla tíð sagt að þegar samkomutakmarkanir eru að koma beint niður á rekstraraðilum þá er það algjört sanngirnismál að við komum með einhverjum hætti til móts við slíka aðila. Þessi stóru úrræði sem við höfum verið með, við höfum bara séð hvernig þau eru smám saman að fjara út og okkur þykir það engin goðgá að... | null |
2021 | 38 | Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er meðal tuttugu og tveggja umsækjenda um starf seðlabankastjóra Noregs. | Tuttugu og tvær umsóknir bárust um embætti seðlabankastjóra Noregs. Eitt nafn vekur meiri athygli en önnur. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, er meðal umsækjenda.
Í tilkynningu frá blaðafulltrúa Stoltenbergs segir að norska fjármálaráðuneytið hafi haft sa... | Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er meðal tuttugu og tveggja umsækjenda um starf seðlabankastjóra Noregs. |
2021 | 39 | Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni eru komnar mislangt með að bólusetja með örvunarskammti. Á Austurlandi hafa hlutfallslega flestir fengið örvunarskammt en fæstir á Suðurnesjum. | Flestar heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni eru að bólusetja í þessari viku. Flestir hafa fengið boð um örvunarskammt en þeir sem ekki hafa verið boðaðir, en eru komnir á tíma, geta mætt á auglýstum dögum í sínu umdæmi. Á minni stöðum er fólki þá oftast gert að láta vita, þannig að hægt sé að tryggja að nægt efni sé ... | null |
2021 | 39 | Tæplega þrjátíu omíkron-smit eru staðfest á Íslandi. Bólusetningar og örvunarbólusetning hafa sannað sig gegn alvarlegum veikindum segir sóttvarnalæknir. Örvunarbólusetning virðist tíu sinnum öflugri gegn delta-afbrigðinu en seinni bólusetningin. | Tæplega þrjátíu omíkron-smit eru staðfest hér á landi og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi til muna. Veikindi hafa ekki verið alvarleg.
Það er bara verið að raðgreina og staðfest smit eru nú í kringum 30, tæplega 30, og þetta er fólk sem er að koma erlendis frá mörgum löndum og einhver smit hafa orðið hér innanlands. Ég... | Tæplega þrjátíu omíkron-smit eru staðfest á Íslandi. Þreföld bólusetning hefur sannað sig gegn alvarlegum veikindum segir sóttvarnalæknir. Örvunarbólusetning virðist tíu sinnum öflugri gegn delta-afbrigðinu en seinni bólusetningin. |
2021 | 39 | Nú er talið að færri en óttast var hafi látist vegna skýstrókanna sem fóru yfir átta fylki í Bandaríkjunum um helgina. Rúmlega hundrað voru taldir af, en nú er talið að þeir hafi verið helmingi færri. Sumir bæir voru nánast jafnaðir við jörðu. | It's like a nuclear bomb went off. It's horrible."
Þetta er eins og eftir kjarnorkusprengju, alveg hræðilegt, sagði einn íbúa í bænum Barnsley í Kentucky þegar hann virti fyrir sér rústir þess sem áður var heimili hans. Talið er að skýstrókarnir hafi verið rúmlega fimmtíu talsins. Kentucky varð verst úti, sumir bæir vo... | null |
2021 | 39 | Hátt í 80 prósent þeirra sjúklinga sem nú eru á bráðamóttöku Landspítalans hafa lokið meðferð þar og bíða eftir að komast á aðrar deildir. Yfirlæknir segir ástandið farsakennt og hvetur nýjan heilbrigðisráðherra til að leysa úr vandanum. | Á bráðamóttöku Landspítala eru 36 rúm. Nú skömmu fyrir hádegi höfðu 28 sjúklingar þar lokið meðferð og biðu eftir að komast á aðrar deildir, að sögn Hjalta Más Björnssonar yfirlæknis á bráðamóttöku.
Landspítali er ekki með mönnuð pláss til þess að veita þessu fólki legudeildarþjónustu á öðrum deildum. Og þetta gerir ok... | Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítala hvetur nýjan heilbrigðisráðherra til að leysa úr vanda deildarinnar. Í 28 af 36 rúmum á deildinni liggur fólk sem hefur lokið meðferð en kemst ekki á aðrar deildir vegna skorts á starfsfólki. |
2021 | 39 | Laga helstið. Ekki hefur þurft að minnka sölu á skerðanlegri orku til álvera þar sem viðskiptin eru tryggð með langtímasamningum. Orkuskortinn má bæði rekja til lágrar vatnsstöðu í ákveðnum miðlunarlónum og til veikleika í flutningskerfi raforku. | Raforkuskortur og skerðingar hjá Landsvirkjun hafa lítil sem engin áhrif á rekstur álvera enn sem komið er. Álver Norðuráls á Grundartanga hefur ekki fengið allt það rafmagn sem það hefur óskað eftir, en það veldur litlum truflunum.
Landsvirkjun hefur þurft að hætta sölu á skerðanlegri raforku til ákveðinna stórnotenda... | null |
2021 | 39 | Samband íslenskra sveitarfélaga óttast stórfelldan niðurskurð í rekstri og þjónustu hjúkrunarheimila. Þetta kemur fram í umsögn sambandsins um fjárlagafrumvarp næsta árs. Það segir mikil vonbrigði að frumvarpið endurspegli hvorki gefin loforð um fjármögnun hjúkrunarheimila né nýjan stjórnarsáttmála. | Samband íslenskra sveitarfélaga skilaði í gær, sunnudag, inn umsögn um fjárlagafrumvarpið. Þar er ítrekuð fyrri gagnrýni um að framsetning fjárlagafrumvarpa sé flókin og því erfitt að gera sér grein fyrir fjármögnun verkefna. Nú hafi bæst ofan á að óvenju skammur tími gefist til að bregðast við frumvarpinu. Sambandið g... | null |
2021 | 39 | Max Ver'stappen tryggði sér í gær fyrsta heimsmeistaratitil sinn í Formúlu eitt kappakstri þegar hann hafði betur gegn Lewis Hamilton í Abu Dhabi kappakstrinum í gær. Keppnin gekk ekki áfallalaust en úrslitin réðust á síðasta hring. | Hollendingurinn Max Verstappen sem ekur fyrir lið Red Bull tók fram úr bretanum Lewis Hamilton sem ekur fyrir Mercedes á lokahringnum í Abu Dhabi en Hamilton var á höttunum eftir áttunda heimsmeistaratitli sínum. Kristján Einar Kristjánsson lýsti keppninni á Viaplay.
Stjarnan og Þór Þorlákshöfn tryggðu sig inn í undanú... | null |
2021 | 39 | Fjármögnunarmódel sveitarfélaga gengur ekki upp og hamlar kjarasamningagerð segir Friðrik Jónsson formaður BHM. Það sé hagur stéttarfélaganna, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga að leiðrétta þá skekkju. | Friðrik segir mjög mikilvægt að byrja kjaraviðræður sem fyrst á nýju ári til að koma í veg fyrir vinnudeilur í lok ársins og byrjun 2023. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna út í byrjun nóvember, en hjá flestum starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga fjórum mánuðum síðar. Friðrik segir að skattstofn sveitarfélaga ... | Skattstofn sveitarfélaga er ein stærsta skekkjan á íslenskum vinnumarkaði og hamlar kjarasamningagerð segir formaður BHM. |
2021 | 39 | Akureyrarbær krefst þess að ríkið kaupi eignarhluta bæjarins í mannvirkjum dvalar- og hjúkrunarheimila á Akureyri. Formaður bæjarráðs segir ríkið ekki hafa svarað ítrekuðum óskum Akureyrarbæjar um viðræður. | Fyrr á þessu ári samdi ríkið við Heilsuvernd ehf. um rekstur hjúkrunarheimila á Akureyri, eftir að bærinn skilaði rekstrinum til ríkisins. Í síðasta mánuði gerði Heilsuvernd svo tilboð í fasteignirnar þar sem heimilin eru rekin. Var tilboðið tekið til umræðu á fundi þar sem fram kom að bærinn vill selja eignirnar en þa... | Formaður bæjarráðs Akureyrar segir ríkið ekki hafa svarað ítrekuðum óskum bæjarins um að ríkið kaupi fasteignir hjúkrunarheimila í bænum. Heilsuvernd ehf. hefur boðið þrjá milljarða í eignirnar. |
2021 | 39 | Tveggja Dana er saknað eftir árekstur flutningaskips og dýpkunarpramma á Eystrasalti í nótt. Prammanum hvolfdi við áreksturinn. | Tveggja danskra sjómanna var leitað í nótt og morgun eftir árekstur bresks flutningaskips og dansks dýpkunarpramma á Eystrasalti. Prammanum hvolfdi þegar skipin rákust á.
Slysið varð laust eftir klukkan hálf þrjú í nótt að íslenskum tíma, á sundinu milli eyjunnar Borgundarhólms og Ystad í Svíþjóð. Neyðarsendir prammans... | Tveggja Dana er saknað eftir árekstur flutningaskips og dýpkunarpramma á Eystrasalti í nótt. Prammanum hvolfdi við áreksturinn. |
2021 | 40 | Kærunefnd jafnréttismála telur að Menntaskólinn við Sund hafi mismunað umsækjendum eftir aldri þegar skólinn réð í stöðu kennara sem átti að sinna kennslu í siðferði og lýðræðisvitund. Skólinn sagði að því fylgdi aukinn kostnaður að ráða kennara sem væri sextugur. | Menntaskólinn við Sund auglýsti í fyrra eftir kennara í fullt starf til að sinna kennslu í lýðræðisvitund og siðferði. Einn umsækjenda sem ekki var kallaður í viðtal kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála Hann taldi skólann hafa mismunað sér vegna aldurs
Skólinn sagði máli sínu til stuðnings að því fylgdi auki... | null |
2021 | 40 | Villa sem greindist fyrir helgi í algengum stýrikerfum er mögulega alvarlegri en menn töldu, segir framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis. | CERT-IS netöryggissveit Fjarskiptastofu hefur virkjað samhæfingarferli vegna alvarlegs veikleika í algengum hugbúnaði. Um er að ræða villu í kóða sem gerir það að verkum að hægt er að komast inn í stýrikerfi hjá rekstraraðilum þeirra. Veikleikinn sem fannst er skilgreindur sem 10, sem er hæsta stig. Netöryggisfyrirtæki... | null |
2021 | 40 | Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru afhent í Berlín í gærkvöld. Þar var Dýrið, kvikmynd Valdimars Jóhannssonar, meðal annars tilnefnd í flokknum Evrópsk uppgötvun, sem veitt eru leikstjórum með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd. | Valdimar hreppti ekki það hnoss en Dýrið fer þó ekki tómhent heim frá Berlín því þeir Peter Hjorth og Fredrik Nord voru verðlaunaðir fyrir tæknibrellurnar í myndinni. Sigurvegari hátíðarinnar er óumdeilanlega hin bosníska Jasmila }bani. Hún er leikstjóri ársins, kvikmynd hennar, Quo Vadis, Aida? var valin kvikmynd árs... | null |
2021 | 40 | Leitað er í kappi við tímann að þeim tugum sem enn er saknað í þeim ríkjum Bandaríkjanna þar sem skýstrókar fóru yfir á föstudagsnótt. Staðfest hefur verið að áttatíu og þrír fórust en óttast er að fleiri eigi eftir að finnast látnir. Bandaríkjaforseti segir ljóst að hlýnun jarðar hafi áhrif á öfgar í veðri og ætlar að... | This was my home till last night.
Þetta var heimili mitt þar til í nótt, sagði Barbara Petterson við fjölmiðla. Hún er ein fjölmargra sem misstu heimili sín í Mayfield - tíu þúsund manna bæ í Kentucky-ríki. Skýstrókarnir jöfnuðu fjölda mannvirkja við jörðu, eyðilögðu raflínur, rifu tré upp með rótum og skemmdu allt það... | Tuga er enn saknað eftir að þrjátíu skýstrókar fóru yfir sex ríki í Bandaríkjunum í fyrrinótt. Staðfest hefur verið að 83 fórust. Bandaríkjaforseti segir veðrið hafa verið eitt það versta í sögu landsins. |
2021 | 40 | Laxar hafa ákveðið að slátra laxi úr öllum kvíum á eldisstöð í Reyðarfirði. Veira sem getur valdið blóðþorra greindist í einni kví þar í síðasta mánuði. | Þetta var í fyrsta sinn sem sjúkdómsvaldandi afbrigði svokallaðrar ISA-veiru greindist í laxi hér á landi. Hún tilheyrir inflúensuveirum og er stundum kölluð laxaflensa. Veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku eftir að óeðlilega mikið af laxi drapst í einni kvínni. Ákveðið var í samráði við Matvælastofnun að aflí... | Öllum fiski á einni eldisstöð Laxa í Reyðarfirði verður slátrað af ótta við að veira sem veldur blóðþorra hafi smitast á milli kvía. |
2021 | 40 | Leiðtogaslagur Sjálfstæðismanna í borginni snýst um það hver er líklegri til þess að vinna kosningarnar og leiða flokkinn inn í meirihlutasamstarf. Þetta sagði Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi, sem sækist eftir oddvitasæti á lista flokksins, í Silfrinu. | Hildur og Eyþór Arnalds, oddviti flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum, mættust í Silfrinu auk Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar, og Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, oddvita Pírata, og tókust á um borgarmálin. Kosið verður í fyrri hluta maí en óljóst er hvort Hildur eða Eyþór muni leiða Sjálfstæðismenn í... | Hildur Björnsdóttir segir ekki mikinn meiningarmun á sér og Eyþóri Arnalds en þau sækjast bæði eftir oddvitasæti Sjálfstæðismanna í borginni. Leiðtogaslagurinn snúist um hver sé líklegri til þess að vinna kosningarnar. |
2021 | 40 | Noregur og Svíþjóð skildu jöfn í hörkuspennandi leik á HM í handbolta í gærkvöld. Noregur gat með sigri komist í 8-liða úrslit. | Spennan í milliriðli tvö á HM í handbolta er mikil fyrir lokaumferðina sem spiluð verður á morgun. Noregur, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, gat komist í 8-liða úrslitin með sigri á Svíþjóð í gær en Svíar þurftu hins vegar stig gegn Noregi til að eiga raunhæfa möguleika á því að komast áfram. Noregur var tveimur mörku... | Noregur og Svíþjóð gerðu jafntefli í milliriðli sínum á HM í handbolta í gærkvöld. Spennan er mikil fyrir lokaumferðina á morgun. |
2021 | 41 | Blaðamennirnir Maria Ressa frá Filippseyjum og Dmitry Muratov frá Rússlandi tóku í gær við friðarverðlaunum Nóbels í Osló. Þau lýstu áhyggjum af fjölmiðlafrelsi, upplýsingaóreiðu, falsfréttamennsku, alræðishyggju og misnotkun bandarískra samfélagsmiðla og netrisa á yfirburðastöðu sinni. | Þau Ressa og Muratov voru verðlaunuð fyrir ómetanlegt framlag þeirra til að verja tjáningarfrelsið, frumforsendu lýðræðis og varanlegs friðar. Muratov er einn stofnenda hins sjálfstæða, rússneska dagblaðs Novaya Gazeta, sem hóf útgáfu 1993, og er einn örfárra rússneskra fjölmiðla sem ekki fylgir línunni frá Kreml í ei... | null |
2021 | 41 | Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir skerðingar á sölu á raforku til ákveðinna notenda alvarlegt mál og þvert á aðgerðaáætlun Íslands í orkumálum og orkustefnuna. Landsvirkjun tilkynnti í vikunni að skerða þyrfti nú þegar afhendingu á raforku til stórnotenda vegna raforkuskorts og takm... | Því miður lítur það þannig út að sé lítið hægt að gera hvað varðar þessa vertíð. Við munum hinsvegar reyna að gera það sem hægt er að gera og eiga samtal við fleiri aðila. Síðan er þetta bara partur af stærri mynd. Við erum núna að fara í orkuskipti - aftur.
segir Guðlaugur Þór og vísar til fyrri orkuskipta þegar hitav... | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir skerðingar á sölu á raforku til ákveðinna notenda alvarlegt mál og þvert á aðgerðaáætlun Íslands í orkumálum og orkustefnuna. |
2021 | 41 | Hópur tónlistarmanna og unnenda teknó-tónlistar, sem kennd er við Berlín í Þýskalandi, berjast nú fyrir því að tónlistin verði sett á menningarminjaskrá Unesco. Þá myndi hún njóta sérstakrar verndar sem tákn sameiningar landsins. | Teknótakturinn á uppruna sinn í Detroit í Bandaríkjunum en þegar Berlínarmúrinn féll árið 1989 varð tónlistin mjög vinsæl í Berlín og í hugum margra táknmynd sameiningar Þýskalands, sem hafði þá í fjörutíu og eitt ár verið skipt upp í tvö ríki, Austur og Vestur-Þýskaland. Fjölmenn reif voru haldin í yfirgefnum byrgjum ... | null |
2021 | 41 | Tillaga forsætisráðherra til þingsályktunartillögu um breytta skipan ráðuneyta var birt á vef Alþingis í gærkvöldi. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir fjölgun ráðuneyta viðsnúning frá þeirri áherslu sem var eftir hrun. | Í þingsályktunartillögu forsætisráðherra er gerð grein fyrir þeim breytingum sem verða á uppbyggingu ráðuneyta og verkefnaskiptingu þeirra með nýrri ríkisstjórn. Samkvæmt tillögunni er stefnt að því að breytingarnar taki gildi 1. febrúar en ráðuneytum fjölgar um tvö.
Gunnar Helgi Kristinsson var gestur í Vikulokunum á ... | Prófessor í stjórnmálafræði segir fjölgun ráðuneyta marka mikla breytingu á þeim áherslum sem stjórnvöld settu eftir hrun. |
2021 | 41 | Keppni í milliriðlum á HM kvenna í handbolta heldur áfram í dag og í kvöld. Norska landsliðið, þar sem Þórir Hergeirsson er við stjórnvölinn, getur komist í 8-liða úrslit með sigri á Svíum. | Önnur umferð milliriðla 1 og 2 hefst í dag. Í milliriðli 1 geta Ólympíumeistarar Frakklands tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum með sigri á Serbíu. Þá getur Rússland einnig komist í 8-liða úrslitin úr sama milliriðli en þar þurfa Rússar að vinna Svartfjallaland og treysta svo á franskan sigur gegn Serbum. Leikur Svartfja... | Keppni heldur áfram á HM kvenna í handbolta í dag og er mikið undir í milliriðlunum. Noregur mætir Svíþjóð í stórleik dagsins. |
2021 | 41 | Forstjóri endurvinnslufyrirtækisins Terra segir skelfilegt að vita að plast, sem fyrirtækið sendi til endurvinnslu í Svíþjóð árið 2016, liggi enn óhreyft í vöruskemmu í Svíþjóð. Hann segir að eftirlit með endurvinnslu sé mun betra í dag en þá. | Stundin birti í gær myndir af hundruðum tonna af íslenskum plastúrgangi, sem hefur legið óhreyfður frá árinu 2016 í vöruskemmu í Svíþjóð. Endurvinna átti plastið, og Úrvinnslusjóður hefur greitt íslenskum endurvinnslufyrirtækjum um hundrað milljónir króna fyrir endurvinnsluna. Terra er eitt þeirra fyrirtækja sem flutti... | Forstjóri endurvinnslufyrirtækisins Terra segir skelfilegt að vita að plast, sem fyrirtækið sendi til endurvinnslu í Svíþjóð árið 2016, liggi enn óhreyft í vöruskemmu í Svíþjóð. Hann segir að eftirlit með endurvinnslu sé mun betra í dag en þá. |
2021 | 42 | Stykkishólmsbær og Helgafellssveit hefja nú formlegar sameiningarviðræður. Stefnt er að íbúakosningu um sameiningu sveitarfélaganna í mars á næsta ári. | Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti að hefja formlegar sameiningaviðræður í gær, en samþykki Helgafellssveitar lá þá þegar fyrir. Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir að nú muni samstarfsnefnd um viðræðurnar hefja undirbúningsvinnu.
Sem endar síðan með því að íbúar þessara beggja sveitarfélag... | Nágrannasveitarfélögin Stykkishólmsbær og Helgafellssveit hefja nú formlegar sameiningaviðræður og stefna að íbúakosningu í mars á næsta ári. |
2021 | 42 | Tveir dómkvaddir matsmenn verða skipaðir til að meta umönnum sjúklings sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Tveir læknar og einn hjúkrunarfræðingur hafa réttarstöðu sakbornings í málinu. | Þetta er samkvæmt staðfestingu Landsréttar á úrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Matsmönnunum er ætlað að svara því hvort umönnun sjúklingsins hafi verið fullnægjandi, meðal annars næringar- og vökvagjöf, meðferð til að koma í veg fyrir legusár og meðhöndlun legusára, meðferð við þvag- og hægðalátum og umönnun almennt. Mat... | Landsréttur hefur úrskurðað að tveir sérfróðir matsmenn verði kallaðir til við að meta meðferð og umönnun sjúklings sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. |
2021 | 42 | Arthúr Bogason, formaður félags smábátaeigenda, segir að gæta þurfi jafnræðis í eftirliti með brottkasti og | er verulega ósáttur með þá mynd sem Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, setti fram í viðtölum í gær.
Þetta var Arthúr Bogason. Róbert Jóhannsson tók pistilinn saman.
Sagði Arthúr í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Hann sagði drónaeftirlit með veiðum smábáta falla undir njós... | null |
2021 | 42 | Fimm af sex oddvitum bæjarstjórnarflokka Akureyrar ætla ekki að gefa kost á sér í oddvitasæti í komandi sveitarstjórnarkosningum. Bæjarstjórinn á Akureyri segir mikið áhyggjuefni hversu örar breytingar eru í sveitarstjórnum. | Miklar breytingar verða á bæjarstjórn Akureyrar á næsta kjörtímabili. Þegar hafa sjö bæjarfulltrúar tilkynnt að þeir ætli ekki að bjóða sig fram í komandi kosningum. Því verða í mesta lagi fjórir af ellefu núverandi bæjarfulltrúum áfram í bæjarstjórn að loknum kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn er með þrjá fulltrúa í núv... | Að minnsta kosti sjö af ellefu bæjarfulltrúum á Akureyri ætla ekki að bjóða sig fram í komandi sveitarstjórnarkosningum. Bæjarstjórinn segir örar breytingar í sveitarstjórnum áhyggjuefni. |
2021 | 42 | Síðust tvær nætur hafa starfsmenn Bláfjalla unnið hörðum höndum að opnun skíðasvæðisins sem var opið í gær í fyrsta sinn í vetur. Sem stendur eru veður og færð góð og opnað verður klukkan tvö í dag en útlitið fyrir helgina er ekki gott. | Dagurinn byrjaði illa því það var svo hrikalega vont veður hérna en svona upp úr hádegi byrjaði það að dúra niður og við gátum farið út að vinna, bæði menn og tæki og svo fengum við bara 'gorgeous' kvöld í blankalogni og svona jólasnjókoma allan tímann, púður yfir öllu. Þetta var bara draumur í dós.
Að baki hverri opnu... | Opnað hefur í Bláfjöllum og skíðatímabilið sunnan heiða hafið. Þeir sem vilja ólmir skíða á aðventunni hafa tækifæri í dag en útlitið er ekki gott næstu daga. |
2021 | 42 | Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms hefur dregið kvennalið félagsins úr úrvalsdeildinni. Ástæðan er sögð erfiðleikar við mönnun og ófyrirséðar breytingar. | Skallagrímur hefur tapað öllum leikjum sínum í úrvalsdeildinni í vetur. Goran Miljevic, sem tók við sem þjálfari liðsins síðastliðið sumar, hætti í lok október eftir 55 stiga tap gegn Njarðvík. Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að ekki hafi tekist að manna meistaraflokksráð og stjórn deildarinnar, sem sé forsenda fyrir... | null |
2021 | 42 | Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hafnaði í gær kröfu Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um að banna skjalasafni Hvíta hússins að afhenda fjölda gagna frá forsetatíð hans, sem ætlað er að varpa ljósi á atburðarásina í aðdraganda árásarinnar á þinghúsið í Washington í ársbyrjun. Gert er ráð fyrir að málinu v... | Samkvæmt úrskurði dómstólsins ber skjalasafninu að koma gögnunum til þingnefndarinnar sem nú fer í saumana á því sem gerðist við og í þinghúsinu 6. janúar síðastliðinn. Þá réðust þúsundir æstra stuðningsmanna Trumps þar inn, unnu skemmdarverk og ógnuðu þingmönnum, starfsfólki og lögreglumönnum. Allt í allt eru það um 7... | null |
2021 | 42 | Að minnsta kosti fimmtíu og fjórir létust og rúmlega hundrað slösuðust þegar bíll með tengivagni ók utan í vegrið og valt á hraðbraut í sunnanverðri Mexíkó í gær. Fólkið var á leið yfir landamærin til Bandaríkjanna. Á þessu ári hafa 650 farandverkamenn dáið í bílslysum á leið yfir landamærin. | Talið er fullvíst að ætlunin hafi verið að smygla fólkinu yfir landamærin. Rúmlega 150 manns var troðið í tengivagninn þar sem það hírðist við illan leik. Fólkið er sagt vera frá Mið-Ameríku, flestir frá Hondúras og Gvatemala. Aðkoman að slysinu var slæm, fólkið lá á víð og dreif, sumir látnir en aðrir með lífsmarki. F... | null |
2021 | 42 | Áfrýjunardómstóll í Lundúnum komst í dag að þeirri niðurstöðu að framselja skuli Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, til Bandaríkjanna. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks segir að það sé nöturlegt að stríðið í Afganistan sé búið en ekki stríðið gegn Julian Assange. | Neðra dómstig í Bretlandi úrskurðaði í janúar að Assange skyldi ekki framseldur til Bandaríkjanna vegna þess að andlegri heilsu hans hefði hrakað. Í dag féll úrskurður Bandaríkjunum í vil. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks segir niðurstöðuna í morgun mikil vonbrigði. Hann segir að Bandaríkjastjórn hafi ekki veitt ... | Dómstóll í Lundúnum veitti í dag heimild fyrir því að framselja Julian Assange, stofnanda Wikileaks, til Bandaríkjanna. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, er mjög ósáttur við niðurstöðuna og segir þetta mikil vonbrigði. |
2021 | 43 | Eyþór Arnalds segist fagna því að fólk vilji leiða Sjálfstæðisflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hildur Björnsdóttir tilkynnti í gær að hún ætlaði að bjóða sig fram til að leiða listann en hún skipaði annað sæti flokksins í síðustu kosningum. | Eyþór lætur engan bilbug á sér finna þó Hildur ætli að fara á móti honum og segir samstarf þeirra hafa gengið að mestu vel á þessu kjörtímabili. Hann segist fanga því að hún vilji áfram vinna fyrir flokkinn í borgarstjórn.
Nei þetta er ekki óvænt, það er bara fagnaðarefni ef að fólk vill gefa kost á sér til að vinna fy... | null |
2021 | 43 | Bandaríkjaforseti segir að ef Rússar ráðast inn í Úkraínu bíði þeirra þvílíkar efnahagslegar refsiaðgerðir að þeir hafi aldrei kynnst öðru eins. | Joe Biden Bandaríkjaforseti segist hafa varað Vladimír Pútín, forseta Rússlands við, að ef Rússar ráðast á Úkraínu bíði þeirra þvílíkar efnahagslegar refsiaðgerðir að þeir hafi aldrei kynnst öðru eins. Pútín segir að engin áform séu um innrás. í Úkraínu.
Forsetarnir ræddust við í tvær klukkustundir í fyrradag um stöðu ... | Bandaríkjaforseti segir að ef Rússar ráðast inn í Úkraínu bíði þeirra þvílíkar efnahagslegar refsiaðgerðir að þeir hafi aldrei kynnst öðru eins. |
2021 | 43 | Heldur dregur úr ótta fólks við að smitast af COVID-19, miðað við nýjan þjóðarpúls Gallup. Áhyggjur landsmanna af efnahagslegum áhrifum sjúkdómsins minnka líka. fara einnig minnkandi. | Helmingur svarenda hefur frekar eða mjög miklar áhyggjur af efnahagslegum áhrifum sjúkdómsins. Frá seinustu könnun fara þær áhyggjur minnkandi en um 57 prósent sögðust hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af efnahagsáhrifunum.
Um 41 prósent hefur miklar eða mjög miklar áhyggjur af því að smitast sem er nokkuð minna en ... | Áhyggjur fólks af að smitast af COVID-19 fara heldur minnkandi og einnig af efnahagslegum áhrifum sjúkdómsins samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. |
2021 | 43 | Um þriðjungi færri umsóknir um aðstoð hafa borist Mæðrastyrksnefnd fyrir þessi jól en þau síðustu og nýjum umsækjendum um jólaaðstoð Hjálparstofnunar kirkjunnar hefur fækkað. Enn er hægt að sækja um jólaaðstoð hjá hjálparsamtökum. | Umsóknarfrestur um jólaaðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur rann út fyrr í vikunni en enn berast þangað fyrirspurnir og því var ákveðið að hægt verði að sækja um þangað til á morgun. Anna H. Pétursdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar segir umsóknirnar færri:
Við aðstoðuðum 1.560 heimili í fyrra og umsóknirnar eru orðn... | Hjálparsamtök fá færri umsóknir um jólaaðstoð en í fyrra og nýjum umsækjendum hefur fækkað. Minna er um að fjölskyldufólk leiti aðstoðar en áður. |
2021 | 43 | 500 milljóna króna viðsnúningur verður á rekstri Mosfellsbæjar á næsta ári. Bæði Mosfellsbær og Garðabær stefna á að skila afgangi á næsta ári. | Sveitarfélög um allt land leggja nú lokahönd á fjárhagsáætlanir næsta árs og greint var frá fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar í gær. Garðabær hefur samþykkt sína fjárhagsáætlun og gerir hún ráð fyrir 48 milljóna króna afgangi af rekstri samstæðunnar sem er þó minni afgangur en í ár. A hlutinn verður raunar rekinn með 46... | Mosfellsbær gerir ráð fyrir 500 milljóna króna viðsnúningi í rekstri bæjarfélagsins á næsta ári. |
2021 | 43 | Breiðablik tapaði 3-0 fyrir Real Madrid í riðlakeppni meistaradeildarinnar í gærkvöld. Liðið á nú aðeins einn leik eftir í keppninni, gegn PSG í París í næstu viku. | Þetta var fjórða tap Blika í fimm leikjum í keppninni en liðið gerði markalaust jafntefli við Kharkiv frá Úkraínu. Liðið hefur því enn ekki skorað mark í keppninni, eitthvað sem leikmenn og þjálfarar hafa talað um sem eitt stærsta markmiðið. Nú er aðeins einn leikur eftir, gegn PSG á útivelli í næstu viku og þar verður... | null |
2021 | 43 | Kraftur er nú kominn í loðnuveiðina og skipin koma hvert af öðru í land með afla. Margir hafa beðið lengi eftir loðnu, Seyðfirðingar meðal annars, sem fengu í morgun fyrstu loðnuna í fjögur ár. Allt hráefnið fer í bræðslu og verður ekkert fryst fyrr en eftir áramót, enda eru helstu markaðir í Rússlandi lokaðir íslensku... | Loðnuveiðin byrjaði ekki af krafti fyrr en sjávarútvegsráðherra leyfði veiðar með flottroll undir mánaðamót og nú er kominn ágætis kraftur í veiðina segir Baldur Marteinn Einarsson, útgerðarstjóri Eskju.
Já, já, við erum alveg farnir að skynja það og veiðin gefur merki til þess. Menn eru að fá fín hol, sérstaklega á da... | Loðnuveiði er hafin af fullum krafti, nú um sextíu mílur norður af Langanesi. Seyðfirðingar fengu í morgun fyrstu loðnuna í fjögur ár. |
2021 | 43 | Húsvörður í Háskólanum á Akureyri var settur í einangrun á sjúkrahúsi vegna gruns um geislaveiki eftir að hafa handleikið blýhólk sem notaður er til að mæla geislavirkni. Starfsmenn Geislavarna ríkisins komu norður í gærmorgun og rannsökuðu hólkinn sem þó reyndist ekki geislavirkur. | Staðarmiðillinn Akureyri.net greinir frá þessu í morgun. Starfsmaðurinn sem veiktist, fékk einkennin skömmu eftir að hann handlék stóran blýhólk í kjallara skólans. Starfsmenn sjúkrahússins sem tóku á móti manninum höfðu samband við Geislavarnir ríkisins eftir að grunur um geislaveiki kviknaði. Gísli Jónsson er viðbúna... | Húsvörður í Háskólanum á Akureyri var settur í einangrun vegna gruns um geislaveiki. Rannsókn Geislavarna ríkisins sýndi að tilviljun virðist hafa ráðið því að hann fékk útbrot skömmu eftir hann handlék blýhólk sem notaður var við geislamælingar. |
2021 | 43 | Miðaldastofa við Háskóla íslands frestaði í morgun fyrirlestri sem seðlabankastjóri átti að halda síðdegis og tengist efni bókar sem hann gaf nýverið út. Ástæðan er ásökun fræðimanns um ritstuld. | Miðaldastofa hefur undanfarið auglýst fyrirlestur sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri átti að halda á hennar vegum síðdegis í dag. Fyrirlesturinn bar heitið Efnahagsmál á landnámsöld og fjallaði um sama efni og Ásgeir skrifar um í nýútkominni bók sinni Eyjan hans Ingólfs. Bergsveinn Birgisson, fræðimaður og rithöfundur... | null |
2021 | 44 | Hverfandi líkur eru á því að gos hefjist í Grímsvötnum. Skjálftavirkni þar hefur minnkað seinasta sólarhringinn. Fluglitakóði Veðurstofunnar fyrir Grímsvötn, sem var færður úr gulu í appelsínugult, verður líklega endurskoðaður. | Í gærmorgun varð skjálfti upp á 3,6 stig í Grímsvötnum. Síðan þá hefur dregið úr skjálftavirkni og þeir sem mælast eru mun minni. Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands segir að vísindamenn hafi farið upp á tærnar þegar skjálftinn varð.
Það er alveg týpískur undanfari eldgoss. Það er aukin... | Dregið hefur úr skjálftavirkni í Grímsvötnum. Hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofunni segir hverfandi líkur á að eldgos verði í kjölfar hlaups úr Grímsvötnum. |
2021 | 44 | Aðgerðir innanlands verða óbreyttar í tvær vikur. Vonir standa til að hægt verði að slaka á aðgerðum fyrir jól. Willum Þór Þórsson tilkynnti þetta að loknum ríkisstjórnarfundi nú rétt fyrir hádegið. | null | Covid reglur innanlands verða óbreyttar næstu tvær vikur. Heilbrigðisráðherra greindi frá þessu að loknum ríkisstjórnarfundi nú fyrir hádegi. |
2021 | 44 | Líftæknifyrirtækið Alvotech verður væntanlega skráð í bandarísku kauphöllina á fyrri hluta næsta árs og fyrsta lyf fyrirtækisins væntanlegt í sölu á næstu misserum, en það er hliðstæða arðsamasta lyfs í heimi. | Skráning Alvotech í bandarísku kauphöllina verður með sameiningu fyrirtækisins og sérhæfða yfirtökufélagsins Oaktree Acquisition Corporation, en tilkynnt var um samrunasamning félaganna í dag. Gert er ráð fyrir að þegar sameiningunni verður að fullu lokið verði hlutabréf í fyrirtækinu skráð undir nafninu ALVO á Nasdaq.... | null |
2021 | 44 | Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varar við að beita skyldubólusetningu fyrr en allt annað hefði verið reynt. Slík ráðstöfun gæti rýrt traust á stjórnvöldum. | Skyldubólusetning gegn COVID-19 á að vera algjört neyðarúrræði, segir yfirmaður Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Hann hvetur jafnframt til þess að börn verði betur vernduð gegn sjúkdómnum.
Skyldubólusetning hefur verið sífellt meira í umræðunni, og nokkur lönd hafa jafnvel tekið hana upp. Austurríki hefu... | Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varar við að beita skyldubólusetningu fyrr en allt annað hefði verið reynt. Slík ráðstöfun gæti rýrt traust á stjórnvöldum. |
2021 | 44 | Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir enga málefnalega gagnrýni hafa komið fram á skipan Jóns Gunnarssonar í embætti dómsmálaráðherra. Þá kveðst hann ekki skilja gagnrýni á skipan Brynjars Níelssonar sem aðstoðarmanns dómsmálaráðherra og segir hann reyndan þingmann sem njóti mikils stuðnings. | Fólki er frjálst að hafa skoðun á einstaka ráðherrum en ég sé bara engan málefnanlegan grundvöll fyrir þeirri gagnrýni sem hefur komið fram. Þú telur að það sé engum vandkvæðum bundið að þeir sinni þessum málaflokki? Veistu ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að bregðast við þessari spurningu. Við erum að tala hérna u... | Formaður Sjálfstæðisflokksins segir enga málefnanlega gagnrýni hafa komið fram um skipan Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra né aðstoðarmanns hans Brynjars Níelssonar. |
2021 | 44 | Bandarískir diplómatar og ráðamenn verða ekki viðstaddir Vetrarólympíuleikana í Peking sem fram fara í febrúar. Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að sniðganga leikana vegna mannréttindabrota kínverskra stjórnvalda. | Bandarískt íþróttafólk verður þó, eins og staðan er í dag, meðal keppenda á leikunum sem hefjast þann 4. febrúar og munu njóta fulls stuðnings bandarískra stjórnvalda. Í tilkynningu frá Hvíta húsinu kom fram að ekki hafi þótt sanngjarnt að neyða íþróttafólkið til að hætta við þátttöku þar sem mikið hefði verið lagt í u... | null |
2021 | 45 | Mikið hefur verið um slys og árekstra í morgun vegna hálkunnar. Framkvæmdastjóri Áreksturs.is segir mjög algengt að bílar séu enn á sumardekkjum og ökumenn jafnvel með nagladekkin í skottinu. | Glerhált var á höfuðborgarsvæðinu í morgun og hálkan mjög lúmsk og erfitt að átta sig á hvort göturnar voru blautar eða hálar. Allt lið söltunarbíla var að störfum í nótt, byrjað var að salta strætó- og stofnleiðir og síðan farið í fáfarnari götur. Einn úr flotanum lenti í vandræðum í Kjarrhólma um fimm leytið í morgun... | Tvöfalt álag hefur verið á bráðamóttöku Landspitalans í morgun miðað við venjulegan dag, vegna hálkuslysa. Þá hafa tugir árekstra orðið á höfuðborgarsvæðinu og algengt að bílar séu enn á sumardekkjum. |
2021 | 45 | Tálknafjarðarhreppur athugar nú afstöðu nágranna sinna á Vestfjörðum til mögulegrar sameiningar. Allra nema Ísafjarðarbæjar. | Tálknafjarðarhreppur hefur nú lokið valkostagreiningu þar sem sameiningakostir voru skoðaðir. Í kjölfarið hefur sveitarstjórn sent erindi á öll vestfirsk sveitarfélög nema Ísafjarðarbæ til að athuga afstöðu til sameiningaviðræðna. Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri í Tálknafjarðarhreppi, segir þessi sveitarfélög líkleg... | null |
2021 | 45 | Héraðssaksóknari hefur ákært forsvarsmenn verktakafyrirtækjanna Brotafls og Kraftbindinga fyrir meiriháttar brot gegn skatta-og bókhaldslögum og peningaþvætti. Samanlögð upphæð skattalagabrotanna hljóðar upp á 152 milljónir króna. Í ákærunni gefur saksóknari í skyn að peningaþvættið í málinu geti numið allt að 760 mill... | Tveir forsvarsmenn Brotafls eru ákærðir fyrir að standa skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum, rangfæra bókhald félagsins og peningaþvætti upp á að lágmarki 64 milljónir.
Stjórnarmaður Kraftbindinga og framkvæmdastjóri félagsins eru ákærðir fyrir sömu brot á skattalögum; að standa skil á efnislega röngum virð... | Héraðssaksóknari hefur ákært forsvarsmenn verktakafyrirtækjanna Brotafls og Kraftbindinga fyrir meiriháttar brot gegn skatta-og bókhaldslögum og peningaþvætti. Samanlögð upphæð skattalagabrotanna er 152 milljónir króna. |
2021 | 45 | Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtogi Mjanmar, var í dag dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir undirróður og að hvetja til óhlýðni við herstjórn landsins. Sameinuðu þjóðirnar og mannréttindasamtök mótmæla dóminum. | Alþjóðleg mannréttindasamtök fordæma fjögurra ára fangelsisdómi yfir Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga Mjanmar. Herdómstóll sakfelldi hana fyrir undirróður og að hafa hvatt til óhlýðni gegn herforingjastjórn landsins. Hún á fleiri dóma yfir höfði sér.
Í yfirlýsingu frá Amnesty International segir að með dóminum sé... | Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtogi Mjanmar, var í dag dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir undirróður og að hvetja til óhlýðni við herstjórn landsins. Sameinuðu þjóðirnar og mannréttindasamtök mótmæla dóminum. |
2021 | 45 | Fiskistofa hefur uppgötvað tíu sinnum fleiri brottkastsmál í ár en í fyrra, með því að nota dróna við eftirlitið. Þetta kemur fram í umfjöllun Kjarnans. Málin varða bæði stórar útgerðir og smærri. stærri útgerðarfyrirtæki og minni fiskiskip. | Það sem af er ári hefur Fiskistofa tekið til meðferðar að minnsta kosti 120 brottkastsmál, þar sem talið er að fiskiafla hafi verið kastað í sjóinn.
Þetta er gríðarleg fjölgun brottkastsmála milli ára, en í fyrra voru ellefu mál til meðferðar hjá stofnuninni. Fjölgunin er rakin til breyttrar aðferðar við eftirlit, en í... | Tíu sinnum fleiri brottkastsmál hafa uppgötvast hjá Fiskistofu í ár með því að nota dróna við eftirlit. |
2021 | 45 | Það stefnir í æsilega lokakeppni í Formúlu eitt kappakstri þetta árið. Fyrir lokakeppnina eru þeir Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari, og Max Ver´stappen jafnir að stigum í heimsmeistarakeppni ökuþóra. | Næstsíðustu keppni tímabilsins lauk í Sádí-Arabíu í gærkvöldi og eins og í síðustu tveimur keppnum þar á undan var það Mercedes-ökuþórinn Lewis Hamilton sem kom fyrstur í mark. Fast á hæla honum kom Hollendingurinn Max Verstappen á Red Bull bíl. Þeir tveir háðu harða keppni um sigurinn og skiptust á forystunni en á end... | Endasprettur keppnistímabilsins í formúlu eitt kappakstri verður æsilegur í ár. Þegar einni keppni er ólokið í formúlu eitt kappakstrinum, eru þeir Lewis Hamilton og Max Ver´stappen jafnir að stigum. Úrslitin ráðast í lokakeppninni í Abu Dhabi. |
2021 | 46 | Persónuafsláttur verður ekki lengur föst krónutala heldur mun fylgja verðbólgu og framleiðnivexti frá áramótum. Hagfræðingur hjá ASÍ fagnar þessum breytingum þó vissulega hafi verkalýðshreyfingin viljað sjá gengið lengra til að koma í veg fyrir sjálfkrafa hækkun skatta. | Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður sú breyting gerð um áramótin að persónuafsláttur mun fylgja verðlagi og framleiðnivexti í stað þess að vera föst krónutala. Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræðingur hjá ASÍ segir breytingarnar í fjárlagafrumvarpinu skref í rétta átt.
Verkalýðshreyfingin hefur oft bent á þennan galla... | Í nýju fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir því að persónuafsláttur verði ekki lengur föst krónutala heldur fylgi verðbólgu og framleiðnivexti frá áramótum. Hagfræðingur hjá ASÍ fagnar þessum breytingum |
2021 | 46 | Stéttarfélag færeyskra hjúkrunarfræðinga segir það óásættanlegt að þeim sem annast kórónuveirusjúklinga sé ekki greitt sérstaklega fyrir það. Landssjúkrahúsið kallar eftir framtíðarlausn varðandi skimanir og bólusetningu. | Hjúkrunarfræðingar krefjast þess að landsstjórnin taki ástandið alvarlega og greiði uppbót í samræmi við áhættuna sem fylgir starfinu. Óluva í Gong formaður félagsins hefur eftir starfandi hjúkrunarfræðingum að álagið sé nánast orðið óbærilegt. Tummas í Garði, aðstoðarforstjóri faglækninga við Landssjúkrahúsið, tekur u... | Færeyski hjúkrunarfræðingar kalla eftir breytingum á fyrirkomulagi skimana og bólusetninga í landinu og segja óásættanlegt að þeim sem annast kórónuveirusjúklinga sé ekki greitt sérstaklega fyrir það. |
2021 | 46 | Heilbrigðisráðherra líst vel á þær hugmyndir um að sóttvarnalæknir verði framvegis skipaður af ráðherra en ekki Landlækni. Tillögur þessa efnis eru nú til umræðu í samráðsgátt stjórnvalda í tengslum fyrirhugaðar breytingar á sóttvarnalögum. | Tillögurnar byggja meðal annars á álitsgerð sem Páll Hreinsson forseti EFTA dómstólsins gerði að beiðni stjórnvalda í fyrra. Gert er ráð fyrir að frumvarpsdrög verði tilbúin á fyrri hluta næsta árs.
Þegar við gerðum breytingar í þinginu sem viðbrögð við faraldrinum og tiltölulega hratt og það komi skýrsla frá Páli Hrei... | null |
2021 | 46 | Slökkvistarf stendur enn yfir í stóru flutningaskipi nærri eyjunni Vinja úti fyrir Gautaborg í Svíþjóð. Eldurinn kom upp í timbri upp úr hádegi í gær. Sautján eru í áhöfn skipsins sem er enn um borð. | Eldurinn kviknaði í timburfarmi á þilfari skipsins, sem heitir Almirante Storni, er hundrað sjötíu og sjö metra langt og siglir undir líberískum fána. Slökkvistarf er langt komið og sænska ríkissjónvarpið, SVT, greinir frá því að tekist hafi að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu eldsins. Bátar frá Svíþjóð, Danmörku, F... | null |
2021 | 46 | Tveir eru látnir og einn alvarlega særður eftir þrjár skotárásir í Kaupmannahöfn í Danmörku síðan á fimmtudag. Lögregla hefur ekki gefið upp hvort talið sé að málin tengist. | Maður á fertugsaldri liggur alvarlega særður á sjúkrahúsi eftir skotárás á kaffihúsi í Friðriksbergi í borginni í gærkvöld. Lögregla greindi frá því á upplýsingafundi að hann hafi verið skotinn í höfuðið. Lýst hefur verið eftir árásarmanninum en mynd af honum náðist á eftirlitsmyndavél í verslun skömmu eftir árásina.
M... | null |
2021 | 46 | Annar yfirþjálfara hópfimleikalandsliða Íslands segir að ekki hafi verið hægt að biðja um betri árangur en þann sem náðist á Evrópumótinu í Portúgal. Hann segir silfurverðlaun Íslands í karlaflokki marka tímamót í íslenskum fimleikum. | Kvennalandsliðið varð jafnt því sænska að stigum en Ísland vann sigur á fleiri áhöldum og varð því Evrópumeistari. Karlalandsliðið vann svo silfrið í gærkvöldi og í unglingafokkum vann stúlknalandsliðið til silfurverðlauna og blandað lið Íslands náði bronsinu. Björn Björnsson er annar yfirþjálfara íslensku landsliðanna... | Annar yfirþjálfara hópfimleikalandsliða Íslands segir að ekki hafi verið hægt að biðja um betri árangur en þann sem náðist á Evrópumótinu í Portúgal. Hann segir silfurverðlaun Íslands í karlaflokki marka tímamót í íslenskum fimleikum. |
2021 | 47 | Aðeins þrettán af 63 þingmönnum fá ekki fastar álagsgreiðslur og laun ofan á þingfararkaup sitt vegna ýmissa starfa innan þings og ríkisstjórnar. Allir þingmenn Vinstri grænna og Miðflokksins fá aukagreiðslur. | Fjórir af hverjum fimm þingmönnum fá greidd ráðherralaun eða álagsgreiðslur vegna þingstarfa ofan á þingfararkaup sitt. Allir þingmenn tveggja flokka njóta álagsgreiðslna.
Nú þegar þingstörf eru hafin er orðið ljóst hvernig embætti og verkefni skiptast milli þingmanna. Það ræður því hvaða ábyrgð og verkefni lenda á her... | Aðeins þrettán af 63 þingmönnum fá ekki fastar álagsgreiðslur og laun ofan á þingfararkaup sitt vegna ýmissa starfa innan þings og ríkisstjórnar. Allir þingmenn Vinstri grænna og Miðflokksins fá aukagreiðslur. |
2021 | 47 | null | Það tók sjö klukkustundir og 40 mínútur að tefla sjöttu skákina í heimsmeistaraeinvíginu í gær. Norðmaðurinn Magnús Carlsen hafði leikið 136 leiki þegar hann náði loks að leggja Rússann Ian Nepom-niacht-chi í þessari sannkölluðu maraþonskák. Fyrstu fimm skákum einvígisins lyktaði með jafntefli svo Carlsen er nú með þrj... | Norðmaðurinn Magnus Carlsen náði forystu í heimsmeistaraeinvíginu í skák í gær eftir maraþonskák við Rússann Ian Nepom-niacht-chi sem tók sjö klukkustundir og 40 mínútur. |
2021 | 47 | Ellefu andvana fæðingar eru skráðar í Danmörku undanfarna sex mánuði sem taldar eru tengjast kórónuveirusmiti móðurinnar. Fyrsta árið sem faraldurinn geisaði voru fjögur slík tilfelli skráð í landinu. Sérfræðingur í kvensjúkdómalækningum hvetur danskar konur til bólusetningar. | Frá þessu er greint í Ugeskriftet sem gefið er út af dönsku læknasamtökunum. Haft er eftir sérfræðingi í kvensjúkdómum og fæðingarlækningum að Delta-afbrigði veirunnar valdi alvarlegri veikindum en fyrri afbrigði. Alls hefur þrjátíu og ein þunguð kona veikst mjög alvarlega af völdum COVID-19, fjórtán hafa þurft að fara... | null |
2021 | 47 | Lögreglan í Michigan í Bandaríkjunum handtók snemma í morgun foreldra drengs sem skaut fjóra nemendur til bana í Oxford-menntaskólanum skammt frá Detroit á þriðjudag. Faðirinn keypti morðvopnið fjórum dögum fyrir voðaverkið. Foreldrarnir hafa verið ákærðir fyrir morð af gáleysi. | James og Jennifer Crumbley var gert að mæta fyrir rétt í gær. Þegar þau létu ekki sjá sig auglýsti lögreglan eftir þeim. Þegar það bar ekki árangur var þeim sem gæti gefið upplýsingar um dvalarstað þeirra heitið tíu þúsund bandaríkjadölum. Í gær komst lögreglan á sporið, Crumbley hjónin höfðu tekið fjögur þúsund bandar... | null |
2021 | 47 | Það var kalt víða á landinu í nótt og frostið við Mývatn fór í tuttugu og eina komma fjórar gráður, sem er mesta frost sem mælst hefur á landinu það sem af er vetri. Helgi Héðinsson oddviti Skútustaðahrepps segir að Mývetningar séu vanir svona frosthörkum og þetta hafi því lítil áhrif á fólk. | null | null |
2021 | 47 | Skíðalyfturnar á Siglufirði verða ræstar í dag, í fyrsta skipti þennan veturinn. Þar er gott færi og sér forstöðumaður skíðasvæðisins fram á góðan skíðavetur eftir tvö mögur ár. | Heyrðu það er ótrúlega gott þó það sé ekki mikill snjór en troðnar brekkur eru mjög fínar hjá okkur og núna er þriggja stiga frost og logn og bara aðstæður eins og þær gerast bestar á þessum tíma.
Segir Egill Rögnvaldsson, forstöðumaður skíðasvæðisins á Siglufirði. Alla jafna opna Siglfirðingar skíðasvæðið á þessum tím... | Skíðasvæðið á Siglufirði opnar í dag, í fyrsta skipti þennan veturinn. Gott færi er í brekkunum og veður til skíðaiðkunar með besta móti. |
2021 | 47 | Aukin framlög Íslands til þróunarmála er bókhaldsbrella, segir þingmaður Pírata. Stjórnvöld hafi nýtt sér heimild til að telja kostnað vegna móttöku og brottvísunar hælisleitenda til þróunaraðstoðar. | Þingmenn halda nú áfram fyrstu umræðu Alþingis um fjárlagafrumvarp næsta árs. Þingfundur stóð til að ganga tólf í gærkvöld en þó tókst ekki að ljúka fyrstu umræðu um frumvarpið eins og stefnt hafði verið að.
Aukin framlög Íslands til þróunarmála eins og þau birtast í fjárlagafrumvarpinu eru bókhaldsbrella, sagði Gísli ... | Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarpið stendur enn yfir á Alþingi en gert er ráð fyrir að henni ljúki í dag. Aukin framlög Íslands til þróunarmála er bókhaldsbrella, segir þingmaður Pírata. Stjórnvöld hafi nýtt sér heimild til að telja kostnað vegna móttöku og brottvísunar hælisleitenda til þróunaraðstoðar. |
2021 | 48 | Það stefnir í að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra tapi á þriðja hundrað milljónum króna á rekstri málefna fatlaðra á þessu ári. Þá lítur út fyrir að tekjuframlag Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna minnki um 120 milljónir króna frá síðasta ári. | Öll sveitarfélögin á Norðurlandi vestra starfa saman að málefnum fatlaðra í fjórðungnum. Sveitarfélagið Skagafjörður leiðir samstarfið og ber ábyrgð á rekstri og faglegri umsjón. Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur og Blönduósbær hafa nú öll lýst þungum áhyggjum af sífellt auknum kostnaði við málaflokkinn og úr því verði... | Mikið tap blasir við af rekstri sveitarfélaga á málefnum fatlaðra á þessu ári. Á Norðurlandi vestra verður tapið á þriðja hundrað milljónir króna ef svo fer fram sem horfir. Ástæðan er mikill samdráttur á framlögum úr Jöfnunarsjóði. |
2021 | 48 | Nýtt hjúkrunarheimili strax" og Einbýli takk" stendur á kröfuspjöldum eldri borgara á Hornafirði sem mótmæltu í morgun seinagangi við byggingu nýs hjúkrunarheimilis. 91 árs kona sem deilir herbergi með öðrum segir niðurdrepandi að geta ekki talað við fólk í einrúmi. | Í morgun mótmæltu eldri borgarar á Hornafirði seinagangi við byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Kona á tíræðisaldri segir vont að fá ekki að búa í eigin herbergi og þurfa alltaf að tala við fólkið sitt svo aðrir heyri til.
Halla Bjarnadóttir starfaði um áratugaskeið á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði. Nú ... | null |
2021 | 48 | Undirbúningi fyrir kórónuveirubólusetningar barna á aldrinum 5-11 ára er að ljúka. Beðið er ákvörðunar sóttvarnalæknis um framkvæmdina. Hugmyndir eru um að hefja bólusetningar í skólum upp úr áramótum. Líklegt er að þau verði álíka mörg og fullorðnir. | Bóluefnið sem gefa á börnunum er væntanlegt til landsins í árslok. Þau fá Comir naty, sem er bóluefni Pfizer og BioNTech, þriðjung þess skammts sem fullorðnir fá, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins:
Það liggur ekki fyrir ennþá ákvörðun sóttvarnalæknis ... | Verið er að skipuleggja fyrirkomulag kórónuveirubólusetninga 5-11 ára barna. Hugmyndir eru um að þær verði í skólum og að börnin fái jafn margar sprautur og fullorðnir. |
2021 | 48 | Fyrirtæki í matvælaframleiðslu og veitingastaðir á Akureyri taka þátt í stóru matargjafaverkefni sem nú er að fara í gang. Markmiðið er að draga úr matarsóun og aðstoða í leiðinni þá sem minna mega sín. | Hjálpræðisherinn, Akureyrarbær og Vistorka eru að hrinda af stað umhverfis- og samfélagsverkefni með þátttöku tæplega 40 veitingastaða, matvælaframleiðenda, veisluhaldara og verslana. Fyrirtækin gefa mat sem ekki selst og verður hann gefinn áfram. Hvati fyrirtækjanna er, auk þess að láta gott af sér leiða, að spara umt... | null |
2021 | 48 | Örvunarskammtur af bóluefnum frá Pfizer og Moderna veita bestu vörnina samkvæmt rannsókn háskólans í Southampton á Englandi. Þeir sem fengu þrjá skammta af Moderna mældust með mesta mótefnið. | Rannsóknin náði yfir tæplega þrjú þúsund manns á Bretlandi sem fengu örvunarskammt þremur mánuðum eftir að hafa fengið annan skammt af bóluefnum frá AstraZeneca eða Pfizer. Sjö bóluefni voru rannsökuð. Öll juku þau ónæmi eftir tvo skammta af AstraZeneca og sex þeirra eftir tvo skammta af Pfizer. Mánuði eftir örvunarska... | null |
2021 | 48 | Skattaívilnanir af kaupum á hreinum rafbílum renna líklega út um mitt næsta ár þegar kvóta stjórnvalda verður náð. Ekki er vitað hvað tekur við eftir það og kallar formaður Rafbílasambandsins eftir langtímahugsun hjá stjórnvöldum. | Til að flýta fyrir orkuskiptum hafa kaupendur hreinna rafbíla fengið ívilnun í formi lækkaðs virðisaukaskatts. Núgildandi lög gera ráð fyrir að ívilnunin gildi út árið 2023 eða þar til 15 þúsund slíkir bílar hafa verið fluttir inn. Tómas Kristjánsson, formaður Rafbílasambands Íslands, segir að miðað við þróunina verði ... | Skattaívilnanir til kaupa á rafbílum renna að óbreyttu út á næsta ári. Formaður Rafbílasambandsins kallar eftir því að stjórnvöld horfi til lengri tíma. |
2021 | 49 | Hjúkrunarheimilið Droplaugarstaðir í Reykjavík verður rafmagnslaust í nótt frá miðnætti og fram á morgun. Styrkja þarf vaktina á heimilinu þar sem öryggiskerfi virkar ekki án rafmagns svo lengi. | Það sem stendur til er að rafmagnið mun fara af hérna í nótt og er áætlað að það sé frá 00 til 07 í fyrramálið sem eru sjö tímar.
Íbúar á hjúkrunarheimilinu reiða sig mikið á rafmagn vegna öndunarvéla, súrefnisstuðnings og bjöllukerfis. Á Droplaugarstöðum er ekkert varaafl til að keyra slíkan búnað, fyrir utan litla va... | null |
2021 | 49 | Stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnina um valdhroka og fautaskap gagnvart minnihlutanum á Alþingi þegar í ljós kom að fjárlagafrumvarpið hafði verið sent út til umsagnar áður en fjármálaráðherra mælti fyrir því. Formaður fjárlaganefndar baðst afsökunar á mistökunum. | Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti fyrir fjárlagafrumvarpi næsta árs á Alþingi nú á tólfta tímanum og er umræðan farin af stað. En áður en hann mælti fyrir frumvarpinu varð uppákoma á þingi - Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir er á Alþingi, hvað gerðist?
ég ætla nú bara að biðjast afsökunar á þessum mistökum mínum sem... | Stjórnarandstaðan sakaði ríkisstjórnina um valdhroka og fautaskap gagnvart minnihlutanum á Alþingi þegar í ljós kom að fjárlagafrumvarpið hafði verið sent út til umsagnar áður en fjármálaráðherra mælti fyrir því. Formaður fjárlaganefndar baðst afsökunar á mistökunum. |
2021 | 49 | Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir, að miðað við fjárlagafrumvarpið, vanti um 240 milljónir króna til sjúkrahússins. Áætlað framlag dugi ekki til að mæta uppsöfnuðum rekstrarvanda síðustu ára. | Sjúkrahúsinu á Akureyri eru ætlaðir rúmir tíu komma fimm milljarðar króna á fjárlögum. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins, segir að þeim hafi ekki borist nánari sundurliðun á hvernig þetta fjármagn skiptist, en það sé alveg ljóst að það dugi ekki til.
Við erum búin að vera með uppsafnaðan rekstrarvanda ... | Það vantar um 240 milljónir króna til viðbótar við það fjármagn sem áætlað er til Sjúkrahússins á Akureyri í fjárlögum, segir forstjórinn. |
2021 | 49 | Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn dalar lítillega frá kosningunum og Píratar bæta aðeins við sig, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Miðflokkurinn kæmi ekki manni að. | Breytingar á fylgi flokkanna eru óverulegar frá alþingiskosningunum 25. september. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23% fylgi, en fékk 24,4% í kosningunum. Fylgi Framsóknarflokksins er svo til óbreytt í 17% og fylgi Vinstri grænna sömuleiðis í 13%. Píratar bæta aðeins við sig fylgi frá kosningunum, þeir fengu 8,6% í ko... | null |
2021 | 49 | Karlmaður sem liggur á Landspítala eftir að hafa greinst með omikrón-afbrigði kórónuveirunnar í gær, er þríbólusettur. Ekki hafa greinst fleiri smit af þessu afbrigði. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir óvíst hversu skætt það er. Sóttvarnalæknir segir líklegt að afbrigðið sé víða að finna - en ekki sé tilefni t... | Nú liggja 22 á Landspítala með COVID-19, einn þeirra greindist í gær með omikrón-afbrigðið og hann er einn fjögurra COVID sjuklinga á spítalanum sem hafa verið fullbólusettir auk örvunarbólusetningar. Hann hefur ekki verið erlendis um hríð og talið er að hann hafi smitast innanlands. Óvíst er hvar hann smitaðist, en un... | Sóttvarnalæknir segir líklegt að omíkron afbrigði kórónuveirunnar sé víða að finna. Karlmaður greindist með afbrigðið í gær og liggur á Landspítala. Hann er fullbólusettur, auk þess að hafa fengið örvunarskammt. |
2021 | 49 | Kvennaathvarf á Akureyri hefur verið rekið sem tilraunaverkefni undanfarið rúmt ár. Starfsemi þess hefur nú verið fest í sessi þar sem ljóst er að þörfin er mikil. | Samtök um Kvennaathvarf reka athvarfið á Akureyri samhliða athvarfinu í Reykjavík. Signý Valdimarsdóttir, verkefnisstýra athvarfsins á Norðurlandi segir tilraunatímann hafa verið einhvers konar þarfagreiningu.
Við nýttum þá reynslu sem hefur safnast til að móta reksturinn að þörfum kvenna. Starfið verður í mótun áfram ... | null |
2021 | 49 | Samgöngur eru að komast í samt lag á Norður-Jótlandi eftir að óveðurslægð fór þar yfir í gær. Snjó kyngdi niður með þeim afleiðingum að vegir og flugvellir lokuðust klukkustundum saman. | Um það bil þrjú hundruð farþegar voru veðurtepptir í flugstöðinni í Álaborg í Danmörku í nótt vegna hvassviðris og fannfergis. Óveðurslægð fór í gær yfir norðurhluta Jótlands og fleiri landshluta og lamaði samgöngur á landi og í lofti.
Óveðrið olli því að hvorki var hægt að fljúga frá flugvellinum í Álaborg né til hans... | Samgöngur eru að komast í samt lag á Norður-Jótlandi eftir að óveðurslægð fór þar yfir í gær. Snjó kyngdi niður með þeim afleiðingum að vegir og flugvellir lokuðust klukkustundum saman. Þrjú hundruð farþegar héldu til í flugstöðinni í Álaborg fram eftir nóttu. |
2021 | 50 | Forseti Úkraínu óskar eftir beinum viðræðum við rússnesk stjórnvöld til að binda enda á átta ára stríð við aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Úkraínudeilan setur svip sinn á fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja í Lettlandi. | Forseti Úkraínu ætlar að óska eftir beinum viðræðum við rússnesk stjórnvöld um lausn á deilum við aðskilnaðarsinna í austurhéruðum landsins. Fjölmennt rússneskt herlið er saman komið við landamærin, sem veldur áhyggjum í Úkraínu og á Vesturlöndum.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, flutti sitt árlega ávarp á þingi la... | Forseti Úkraínu óskar eftir beinum viðræðum við rússnesk stjórnvöld til að binda enda á átta ára stríð við aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Úkraínudeilan setur svip sinn á fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja í Lettlandi. |
2021 | 50 | Ófrjó laxaseiði vaxa vel í Berufirði og stefnt er að eldi á sjö þúsund tonnum í Stöðvarfirði. Gangi eldið vel gætu opnast miklir möguleikar á auknu eldi víða um land. | Fiskeldi Austfjarða ætlar að rækta sjö þúsund tonn af ófrjóum laxi í Stöðvarfirði. Ófrjó seiði sem fyrirtækið setti í kví í Berufirði í haust éta mikið og stækka vel.
Eitt af því sem helst takmarkar fiskeldi á Íslandi er óttinn við að eldislaxinn sleppi úr kvíum og blandist villtum laxastofnum. Áhættumat HAFRÓ takmarka... | null |
2021 | 50 | Einkaflugmaður bandaríska barnaníðingsins Jeffreys Epstein segist hafa flogið með frægðarmenni sem heimsóttu hann um víða veröld. Þetta kom fram í vitnisburði hans í réttarhöldunum sem standa nú yfir gegn Ghislaine Maxwell í New York en hún er sökuð um að hafa aðstoðað Epstein við glæpi hans. | Flugmaðurinn Larry Visoski sem var fyrsta vitnið í málinu kveðst minnast þess að hafa flogið með Andrés Bretaprins, Bandaríkjaforsetana fyrrverandi Bill Clinton og Donald Trump og leikarann Kevin Spacey. Hann segir að Maxwell hafi verið hægri hönd Epsteins, en að það hafi verið hann sem öllu réði.
Hún gæti átt yfir höf... | null |
2021 | 50 | Nýjustu upplýsingar benda til að þriðji skammtur af bóluefni sé mun öflugri en annar skammturinn segir sóttvarnalæknir. Hann segir bólusetningu með örvunarskammtinum ganga vel. | Alls greindust 162 með kórónuveiruna í gær, 140 innanlands og 22 á landamærunum. Af þeim sem greindust innanlands voru 72 í sóttkví eða 51%. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir þetta háar tölur, ekki síst á landamærunum en þar greindust óvenju margir. Flestir þeirra sem greindust á landamærunum voru með íslenska ke... | Þriðji bóluefnisskammturinn er miklu mun öflugri en annar samkvæmt nýjustu upplýsingum segir sóttvarnalæknir.162 greindust með kórónuveiruna í gær, þar af 22 á landamærunum sem er mun meiri fjöldi enn venjulega. Omíkron-afbrigðið hefur ekki enn greinst hér á landi. |
2021 | 50 | Í Reykjavík hefur meðalaldur barna, sem hefur nám í leikskóla, hækkað um þrjá mánuði undanfarin þrjú ár. Fulltrúi meirihlutans hjá skóla- og frístundasviði segir þetta ekki ásættanlegt en tíma taki að bæta úr. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í ráðinu segir að borgin hafi dregist verulega aftur úr nágrannasveitarfélögunum í ... | Nú er meðalaldur reykvískra barna 29 mánuðir þegar þau komast inn á leikskóla borgarinnar, en var 26 mánuðir árið 2018. Hildur Björnsdóttir fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skóla- og frístundaráði segir að þetta sýni að ekki hafi verið lögð nægileg áhersla á málaflokkinn.
Þetta eru veruleg vonbrigði og langt í land með að ... | null |
2021 | 50 | Sterkir vindar í Hlíðarfjalli hafa valdið því að stólar í nýrri lyftu fjallsins hafa orðið fyrir skemmdum. Unnið er að úrbótum til að koma í veg fyrir frekari skemmdir og stefnt að því að lyftan opni fljótlega en það verður þó ekki fyrir áætlaða opnun svæðisins 17. desember. | Vinir Hlíðarfjalls, félag um upbbyggingu skíðasvæðisins festu kaup á stólalyftu fyrir nokkrum árum. Upphaflega átti lyftan að vera tilbúin í desember 2018 en hefur enn ekki verið tekin í notkun. Ýmsar ástæður hafa verið gefnar fyrir þessum töfum meðal annars faraldurinn.
Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfj... | null |
2021 | 51 | Eyríkið Barbados varð lýðveldi á miðnætti að staðartíma þegar það sleit öllu ríkjasambandi við Bretland. Fyrrverandi landstjóri drottningar er orðin forseti hins nýja lýðveldis. | Eyríkið Barbados á Vestur-Atlantshafi, austan í Karíbahafi, hefur formlega slitið öllu ríkjasambandi við Bretland eftir tæplega fjögur hundruð ára tengsl. Það varð lýðveldi á miðnætti að staðartíma.
Umskiptin urðu við hátíðlega athöfn klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma. Karl Bretaprins var viðstaddur athöfnina sem... | Eyríkið Barbados varð lýðveldi á miðnætti að staðartíma þegar það sleit öllu ríkjasambandi við Bretland. Fyrrverandi landstjóri drottningar er orðin forseti hins nýja lýðveldis. |
2021 | 51 | Fjármálaráðherra segir stöðuna góða þrátt fyrir mikinn halla á rekstri ríkissjóðs tvö ár í röð. Hann á von á að frumvarpið taki breytingum í meðförum þingsins. | null | null |
2021 | 51 | Kvennalandslið Íslands í fótbolta mætir Kýpur í undankeppni HM 2023 í kvöld. Þorsteinn Halldórsson þjálfari liðsins hefur ekki áhyggjur af því að íslenska liðið vanmeti Kýpur þrátt fyrir að hafa unnið þær stórt í síðasta leik liðanna. | Ísland vann 5-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvelli fyrir rúmum mánuði síðan. Íslenska liðið var í raun óheppið að skora ekki fleiri mörk. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari liðsins, hefur ekki áhyggjur af því að íslenska liðið muni vanmeta andstæðinginn. Þá muni hann ekki breyta áherslum liðsins frá fyrri leiknum að neinu rá... | Kvennalandslið Íslands í fótbolta leikur lokaleik sinn á árinu í dag þegar liðið mætir Kýpur í undankeppni HM. Þá steinlá íslenska karlalandsliðið í körfubolta fyrir Rússlandi í gærkvöld. |
2021 | 51 | Í dag er síðasti dagur sem veiða má rjúpu á þessu ári, auk þess sem núverandi reglugerð um rjúpnaveiðar er að renna út. Formaður Skotveiðifélags Íslands segir ágætis hljóð í veiðimönnum þó hafi veiðin almennt verið frekar treg. | Veiðitímabil rjúpu í vetur var fyrsti til þrítugasti nóvember og veiða mátti alla daga vikunnar, nema miðvikudaga og fimmtudaga. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segir ágætt hljóð í veiðimönnum núna þegar síðasti veiðidagurinn er að hefjast.
Menn hafa alveg náð að kroppa eitthvað í matinn, en maður... | null |
2021 | 51 | Umhverfisstofnun hefur sent frá sér fyrirmæli um úrbætur vegna bensínmengunar á Hofsósi. Sveitarstjóri Skagafjarðar segir það valda vonbrigðum að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda sveitarfélagsins. | Umhverfisstofnun byggir fyrirmælin á úrbótaáætlun sem verkfræðistofan Verkís vann fyrir hönd N1. Stofnunin segir fyrirmælin ramma inn þær kröfur sem gerðar eru á hendur N1 varðandi hreinsun vegna bensínmengunar.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafði falið verkfræðistofunni Eflu að leggja fram tillögur um hvern... | Það stendur ekki til að herða aðgerðir á landamærum vegna útbreiðslu hins nýja Omíkron afbrigðis kórónuveirunnar. Sóttvarnarlæknir segir engar tilkynningar hafa borist um alvarleg veikindi vegna þess. |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.